Félag Kristjáns skuldar rúma tvo milljarða 16. desember 2010 08:00 Skiptastjóri einkahlutafélagsins 7 hægri segir ekki útilokað að Kristján sé í persónulegum ábyrgðum fyrir skuldum félagsins. Fréttablaðið/E.ÓL.
Eignarhaldsfélagið 7 hægri, einkahlutafélag Kristján Arasonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra viðskiptabankasviðs hjá Kaupþingi, var úrskurðað gjaldþrota í Héraðsdómi Reykjaness í síðustu viku. Lánasamningar félagsins eru allir í erlendri mynt og nema 2,1 milljarði króna. Skuldirnar eru tilkomnar vegna lántöku Kristjáns við kaup á hlutabréfum í Kaupþingi árið 2006. Allir lánasamningar eru í erlendri mynt og engar eignir til í búinu upp í skuldir, að sögn Helga Birgissonar lögmanns sem skipaður var skiptastjóri. Gjaldþrotið verður auglýst á næstu dögum og hefur skilanefnd Kaupþings, sem er eini kröfuhafinn, tvo mánuði til að lýsa kröfum í búið. DV greindi frá því í júní í fyrra að lánveitingar Kaupþings til Kristjáns vegna kaupa hans á hlutabréfum í bankanum hefðu um mitt ár 2006 numið tæpum níu hundruð milljónum króna. Þá var ekki útilokað að Kristján hefði tekið aukin lán til frekari hlutabréfakaupa fram að bankahruni. Kristján sagði í samtali við DV í nóvember 2008 að auk lánsins frá Kaupþingi hefðu hann og kona hans, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrrverandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi menntamálaráðherra, lagt ævisparnaðinn að veði í hlutabréfakaupin. „Ævisparnaðurinn er farinn, en við eigum þó allavega húsið… Við höfðum mikla trú á Kaupþingi," sagði hann. Fram kemur í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis að Kristján hafi fært hlutabréfaskuldir sínar inn í einkahlutafélagið 7 hægri ehf. í febrúar 2008 að fengnu leyfi Hreiðars Más Sigurðssonar, forstjóra Kaupþings, og Guðnýjar Örnu Sveinsdóttur, þá fjármálastjóra bankans. Stjórn Kaupþings ákvað í miðju bankahruni að aflétta persónulegri ábyrgð þeirra stjórnenda bankans sem hann lánaði háar fjárhæðir til hlutabréfakaupa. Slitastjórn Kaupþings rifti ákvörðuninni í vor og hefur samið við hluta fyrrverandi starfsmanna Kaupþings um endurgreiðslu á láninu. Helgi útilokar ekki að Kristján sé í persónulegum ábyrgðum fyrir einhverjum hluta lánanna sem hann fékk vegna hlutabréfakaupanna. Ekki náðist í Kristján vegna málsins þegar eftir því var leitað í gær.- jab
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fleiri fréttir Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Sjá meira