Skaðabótamál Glitnis: Frávísunarkrafa tekin fyrir í dag 14. desember 2010 15:52 Steinunn Guðbjartsdóttir.
Málflutningur vegna frávísunarkröfu hinna stefndu í skaðabótamáli Glitnis í New York hefst klukkan fjögur í dag að íslenskum tíma. Sjömenningarnir og PriceWaterHouseCoopers, endurskoðunarfyrirtæki Glitnis, krefjast þess að málinu verði vísað frá dómi í New York. Slitastjórn Glitnis hóf í maí á þessu ári málaferli fyrir dómstóli í New York ríki í Bandaríkjunum gegn Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Lárusi Welding, Hannesi Smárasyni, Pálma Haraldssyni og fleirum en slitastjórnin telur að Jón Ásgeir og viðskiptafélagar hans hafi með sviksamlegum og ólöglegum hætti haft fé af bankanum sem nemi meira en tveimur milljörðum bandaríkjadala, eða um 230 milljörðum króna á núverandi gengi. Málið var þingfest fyrir rétti í borginni þann 11. maí. Lögmenn stefndu vilja að málinu verði vísað frá, og segja að það eigi ekki heima í New York, þar sem allir málsaðilar séu íslenskir. Slitastjórn Glitnis og lögmenn hennar halda því hins vegar fram að bandarískir fjárfestar hafi verið blekktir. Glitnir banki aflaði 2 milljarða bandaríkjadala með skuldabréfaútgáfu þar í landi haustið 2007. Slitastjórn Glitnis heldur því fram að féð hafi runnið til Jóns Ásgeirs og tengdra aðila og því hafi erlendir fjárfestar verið blekktir. Bæði slitastjórn Glitnis og lögmenn stefndu hafa fengið lögfræðiálit frá íslenskum lögmönnum, sem lögð hafa verið fyrir dómstólinn. Þar er því ýmist haldið fram að íslenska dómskerfið ráði vel við mál af þessu tagi, eða færð rök fyrir því að málið eigi heima fyrir dómstóli í New York. Munnlegur málflutningur vegna frávísunarkröfunnar fer fram í dag, eins og áður segir, en óvíst er hvenær niðurstaða liggur fyrir.
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fleiri fréttir Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Sjá meira