Enn fjölgar þeim sem verið hafa án vinnu í meir en ár 14. desember 2010 10:16
Áfram fjölgar í hópi þeirra einstaklinga sem hafa verið án atvinnu í meira en ár, eða um 35 einstaklinga milli mánaða, og voru þeir í lok nóvember 4.649 talsins. Þar með er þetta annar fjölmennasti mánuðurinn hvað þetta varðar en í apríl síðastliðnum voru um 4.662 einstaklingar án atvinnu í meir en ár sem er metfjöldi. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka þar sem fjallað er um nýjustu tölur Vinnumálastofnunnar um atvinnuleysi á landinu en það mældist 7,7% í nóvember. Í Morgunkorninu segir að líkt og á undanförnum mánuðum er fjöldi einstaklinga verulega mikill sem hefur verið atvinnulaus í meira en 6 mánuði. Þannig voru alls 13.619 einstaklingar atvinnulausir í lok nóvember og hafði ríflega helmingur þeirra, eða um 53%, verið án atvinnu í 6 mánuði eða lengur. Þetta er nokkuð lægra hlutfall en verið hefur undanfarna mánuði, auk þess sem fjöldi þeirra hefur ekki verið minni síðan í júlí fyrir ári síðan. Á sama tíma og þeim fer fjölgandi sem eru án atvinnu fækkar störfum sem í boði eru og hefur framboðið í raun sjaldan verið minna en nú. Þannig voru aðeins 168 laus störf hjá vinnumiðlunum í lok nóvember og fækkar um 147 störf frá fyrri mánuði. Á milli nóvember og desember fyrir ári fór atvinnuleysi úr 8,0% í 8,2% og er ekki við að búast að annað verði upp á teningnum í ár, þá hvort tveggja vegna árstíðaráhrifa og slakans í hagkerfinu. Vinnumálastofnun reiknar með að atvinnuleysi komi til með að verða á bilinu 7,8% til 8,1% í desember. „Framvindan á vinnumarkaði er í takti við það við höfðum reiknað með í Þjóðhagsspá Greiningar Íslandsbanka. Spá okkar gerir ráð fyrir 8,1% atvinnuleysi á þessu ári og taki svo að minnka á næstu árum en þó fremur hægt enda fylgir það hagsveiflunni gjarnan með nokkurri töf. Reiknum við því með að atvinnuleysi komi til með að verða mikið á sögulegan mælikvarða á komandi árum og að það verði 5% árið 2013," segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Fleiri fréttir Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Sjá meira