Viðskipti innlent

Vísbendingar um lítinn árgang í þorskinum 2013

Vísir/Stefán
Þorskárgangurinn frá árinu 2013, sem á að bera uppi þorskveiðarnar eftir nokkur ár, er lítill samkvæmt niðurstöðum úr nýafstöðnu togararalli Hafrannsóknastofnunar.

Þá er svonefnd stofnvísitala þorsksins lægri en tvö undanfarin ár, þótt hún sé enn með hæstu gildum sem mælst hafa. Loks er meðalþyngd á eins til sex ára þorski undir meðallagi.

Þessar niðurstöður liggja til grundvallar ráðgjafar Hafrannsóknastofnunar til stjórnvalda, þegar þau ákveða  þorsk-kvótann fyrir næsta fiskveiðiár, sem hefst í haust.

Þessu til viðbótar veiddist minna af mörgum öðrum tegundum í rallinu núna en undanfarin tvö ár, sem Hafró segir að geti verið vegna annarra þátta en stofnstærðar, en segir ekki nánar hverjir þeir geta verið.

Hagsmunaaðilar bíða nú í ofvæni eftir niðurstöðum úr netarallinu, sem nú stendur yfir, í von um að það sýni betri niðurstöður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×