Greining spáir óbreyttri verðbólgu í desember 16. desember 2010 09:58
Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) muni hækka í desember um 0,5% frá nóvembermánuði. Gangi spáin eftir verður verðbólgan 2,6% í mánuðinum og óbreytt frá nóvember. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar en Hagstofan mun birta vísitölumælingu sína kl.9 þann 22. desember næstkomandi. „Ferða- og flutningaliður vísitölunnar leggur til bróðurpart hækkunarinnar þennan mánuðinn að mati okkar. Þannig hækkar VNV um 0,2% vegna hækkunar á eldsneytisverði í spá okkar, og hækkun á flugfargjöldum til útlanda vegur til 0,15% hækkunar VNV. Aðrir liðir hækka líklega lítillega á heildina litið þennan mánuðinn," segir í Morgunkorninu. „Á fyrstu mánuðum nýs árs er útlit fyrir að verðbólga mælist áfram nálægt 2,5% markmiði Seðlabankans. Þannig teljum við að næsta janúarmæling VNV verði á svipuðum nótum og í síðastliðnum janúar, en þá lækkaði VNV um 0,3% á milli mánaða. Útsölulok munu svo ýta vísitölunni nokkuð upp á við að nýju í febrúar og mars líkt og raunin var á sama tíma á þessu ári. Líkur eru á að verðbólguþrýstingur verði lítill næstu misserin. Spáum við 2,3% verðbólgu að meðaltali á næsta ári, og að verðbólga mælist 2,2% að ári liðnu. Þar er lykilforsenda í verðbólguspá okkar fyrir næsta ár að gengi krónu breytist ekki mikið frá því sem nú er. Krónan hefur verið býsna stöðug frá septemberbyrjun og virðist sem mikil breyting verði tæpast á því a.m.k. ekki fyrr en aflétting hafta kemst á fullan skrið. Við gerum ráð fyrir nánast óbreyttu gengi krónu út næsta ár í spá okkar, en vissulega getur brugðið þar til beggja vona. Óvissan er sérstaklega mikil þar sem fyrirhugað er að hefja afnám gjaldeyrishafta á næsta ári. Þannig mun umtalsverð veiking myndi fljótt segja til sín í verðbólgu langt umfram markmið Seðlabankans. Á sama hátt gæti veruleg styrking krónu orðið til þess að framkalla tímabundna verðhjöðnun."
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Fleiri fréttir Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Sjá meira