Ísland hrapar niður listann yfir mestu verðbólgulöndin 16. desember 2010 11:29
Verðbólgan hér á landi var 3,8% í nóvember samkvæmt samræmdri vísitölu neysluverðs sem Hagstofa Evrópusambandsins (e. Eurostat) tekur saman og birti nú í morgun. Minnkar því verðbólgan um 0,8 prósentustig milli mánaða en hún var 4,6% hér á landi í október samkvæmt vísitölunni. Íslæand hrapar niður listan yfir Evrópulönd með mesta verðbólgu. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að í nóvember fyrir ári mældist verðbólgan hér á landi m.v. samræmdu vísitöluna 12,4% og hefur þar með hjaðnað umtalsvert síðasta árið enda eru þau áhrif sem gengislækkun krónunnar hafði á verðbólgu í aðdraganda og samhliða hruni bankakerfisins nær horfin. Á sama tíma og verðbólga minnkar hér á landi hefur hún aukist nokkuð í flestum öðrum ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins (EES). Þannig var verðbólgan að meðaltali 2,3% í ríkjum EES nú í nóvember en fyrir ári síðan mældist hún 1,1%. Milli október og nóvember dregur mest úr verðbólgu á Kýpur (úr 3,2% í 1,7%) og næstmest á Íslandi. Mest eykst hún milli mánaða á Möltu (úr 2,2% í 3,4%) og svo á Lettlandi (úr 0,9% í 1,7%). Er Ísland þar með komið dottið niður í sjötta sæti á listanum yfir mestu verðbólgu í ríkjum EES, en sem kunnugt er vermdi landið lengi vel efsta sætið þessa lista. Verðbólgan mældist mest í nóvember í Rúmeníu (7,7%), þar á eftir í Eistlandi (5,0%) og svo Grikklandi (4,8%). Líkt og upp á síðkastið er það aðeins Írland sem upplifði ástand verðhjöðnunar í nóvember, en þar hefur samræmd vísitala lækkað um 0,8% á síðustu tólf mánuðum.
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fleiri fréttir Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Sjá meira