Viðskipti innlent

Icelandair flutti 219 þúsund farþega í maí

Randver Kári Randversson skrifar
14% aukning varð í farþegaflutningum Icelandair í maí
14% aukning varð í farþegaflutningum Icelandair í maí Vísir/Brink
Í maí flutti Icelandair 219 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 14% fleiri en í maí á síðasta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. 

Sætanýting var 77,1% og dróst saman um 1,6 prósentustig á milli ára. Fella þurfti niður 92 flug og breyta um 12 þúsund bókunum vegna aðgerða flugmanna í mánuðinum. 

Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru um 24 þúsund í maí sem er fækkun um 5% á milli ára. Framboð félagsins í maí var dregið saman um 5% samanborið við fyrra ár. Sætanýting nam 70,8% og dróst saman um 0,7 prósentustig á milli ára. 

Fraktflutningar í áætlunarflugi drógust saman um 5% frá því á síðasta ári, má rekja það til aðgerða flugmanna.

Seldum gistinóttum á hótelum félagsins fjölgaði um 12% miðað við maí 2013. Herbergjanýting var 80,1% en hún nam 72,1% í maí í fyrra. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×