Viðskipti innlent

IFS: Ársverðbólgan lækkar úr 3,3% í 3,0%

Verðbólguspá IFS greiningar fyrir nóvember hljóðar upp á hækkun vísitölu neysluverðs um 0,4%. Ef spáin gengur eftir, mun 12 mánaða verðbólga mælast 3,0%. Verðbólga undanfarinna þriggja mánaða á ársgrundvelli hækkar úr 4,0% í 4,6%. Hagstofan mælir vísitölu neysluverðs í þessari viku, mánudag til föstudags, en niðurstöðurnar verða birtar fimmtudaginn 25. nóvember nk.

Í tilkynningu frá IFS segir að samkvæmt algengum verðum hjá stóru olíufélögunum þá hefur verð á bensíni hækkað um 2,53% og verð á dísel hefur hækkað um 1,99% (vísitöluáhrif: +0,13%).

Í spánni er gert ráð fyrir -0,46% lækkun á reiknaðri húsaleigu (vísitöluáhrif: -0,06%). Byggingarvísitala lækkaði um -2,04% í nóvember og í spánni er gert ráð fyrir -2,04% lækkun á verði viðhalds og viðgerða á húsnæði (vísitöluáhrif: -0,10%).

Mánaðarleg verðmæling IFS bendir til 0,8% hækkunar á verði matarkörfunnar (vísitöluáhrif: 0,08%). Mæling á verði matarkörfunnar er framkvæmd á ákveðnum vörum sem nær ávallt eru til sölu og svo virðist sem að þær hafi hækkað í verði. Fatnaður og skór hækkuðu um 5% frá því í október (vísitöluáhrif: 0,20%).

Gjaldskrárhækkun OR heldur áfram að skila sér inn í vísitöluna og nema vænt áhrif hennar um 0,17% á vísitölu neysluverðs. OR er með um helmings markaðshlutdeild í smásölu á raforkumarkaði og í verðbólguspánni nú er hvorki gert ráð fyrir að samkeppnisaðilar hækki gjaldskrár né kaupendur raforku/heits vatns hækki verð til að mæta auknum kostnaði. Líklegt er að samkeppnisaðilar hækki gjaldskrár á næstunni en erfitt er að meta það sem stendur.

Gangi þessi spá eftir mun verðbólgumarkmið Seðlabankanns nást fyrir áramót, ef verðbólgan í desember mælist næstum engin (0,024%) eða verðhjöðnun verði raunin.

„Við teljum að 12 mánaða verðbólga verði nær markmiðinu í lok árs vegna lágs verðbólguþrýstings í desember," segir IFS greining.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×