Viðskipti innlent

Vísitala íbúðaverðs í borginni hækkar áfram

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 306,5 stig í október 2010 og hækkar um 0,9% frá fyrra mánuði.

Þetta kemur fram á vefsíðu Þjóðskrár Íslands. Þar segir að síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1,2%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 1,2% og síðastliðna 12 mánuði lækkaði hún 2,3%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun fasteignaverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Fasteignaskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði.

Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×