Viðskipti innlent

Telur Spkef geta myndað kjölfestu í sparisjóðakerfinu

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra telur að Spkef sparisjóður geti orðið nægilega stór eining til að mynda kjölfestu í sparisjóðakerfinu. Slík kjölfesta sé nauðsyn til að viðhalda kerfinu.

Þetta kemur fram i svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Birgis Þórarinssonar þingmanns Framsóknarflokksins á Alþingi um um Sparisjóðinn í Keflavík, Spkef sparisjóð, Byr sparisjóð og Byr hf.

Birgir spurði meðal annars hvaða rök og hugmyndir eru að baki því að Byr sparisjóður var gerður að hlutafélagi en Sparisjóðurinn í Keflavík áfram látinn vera sparisjóður?

Í svarinu segir að það sem mælti með hlutafélagaforminu í tilviki Byrs, fyrir utan almenn rök sem færa má fyrir því félagaformi, er að um nokkuð stóra fjármálastofnun er að ræða sem kostnaðarsamt hefði orðið fyrir ríkið að endurreisa sem sparisjóð.

„Landfræðilega standa ekki sömu rök til þess að endurreisa Byr sem sparisjóð og í tilviki Sparisjóðsins í Keflavík. Hlutafélagaformið var talin betri leið með tilliti til endurfjármögnunar eða sölu í framhaldinu, en telja verður að hlutafélagabanki sé áhugaverðari fjárfestingarkostur, m.a. vegna takmarkana á arðgreiðslum í tilviki sparisjóða," segir í svarinu.

„Ríkur vilji er hjá stjórnvöldum til þess að viðhalda sparisjóðakerfinu í landinu. Svo það megi verða er talið að til þurfi að vera nægjanlega stór eining stofnfjársparisjóðs til að mynda kjölfestu í kerfinu og að Sparisjóðurinn í Keflavík geti verið slíkur aðili. Þá er Sparisjóðurinn í Keflavík með starfsstöðvar víða á Vestfjörðum og þess vegna var farin sú leið að láta hann viðhalda sínu félagaformi."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×