Viðskipti innlent

Óbreyttir vextir Íbúðalánasjóðs

Höfðaborg Lánasjóður
Höfðaborg Lánasjóður
Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum og í samræmi við breytingu á vaxtaálagi ákveðið að útlánavextir sjóðsins verði óbreyttir. Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða 4,5 prósent og 5 prósent á íbúðalánum án uppgreiðsluákvæðis.

Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggir á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var 15. nóvember síðastliðinn ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna ÍLS-veðbréfa. - þj





Fleiri fréttir

Sjá meira


×