Spáir því að verðbólgan hjaðni í 3,1% 17. nóvember 2010 11:11
Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) muni hækka í nóvember um 0,5% frá októbermánuði. Gangi spáin eftir mun verðbólga hjaðna úr 3,3% í 3,1% og hefur þá ekki verið lægri frá því í júní 2005. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að seinni hluti gjaldskrárhækkunar OR er einn helsti hækkunarvaldur VNV að þessu sinni, og gerir greiningin ráð fyrir að hann vegi til 0,4% hækkunar vísitölunnar í nóvember. Auk þess má ætla að verðhækkun fatnaðar og eldsneytis leggi hvor um sig 0,1% til hækkunar VNV í mánuðinum. „Á móti gerum við ráð fyrir lítilsháttar lækkun á reiknaðri húsaleigu og ýmsir innfluttir liðir lækka einnig lítillega að mati okkar, enda hefur gengi krónu verið stöðugt á haustdögum eftir umtalsverða styrkingu hennar á fyrstu átta mánuðum ársins," segir í Morgunkorninu. Verðbólguþrýstingur er með minnsta móti í íslensku hagkerfi um þessar mundir, enda mikill slaki í hagkerfinu. Að því gefnu að ekki verði samið um umtalsverða hækkun launa í komandi kjarasamningum er í raun fátt sem ýta ætti upp verði á innlendum vörum og þjónustu. Innflutt verðbólga er sömuleiðis lítil þessa dagana og haldi krónan sjó fram á nýja árið er varla von á mikilli hækkun VNV úr þeirri áttinni, þótt áhrif hækkunar verðs á landbúnaðarvörum á heimsmarkaði á 3. fjórðungi ársins eigi enn eftir að koma fram að einhverju leyti í innlendu verðlagi. „Teljum við að VNV muni hækka um 0,3% í desember, en að sú hækkun muni ganga til baka með janúarútsölum á nýju ári. Verðbólga mun að okkar mati verða 2,9% í lok ársins," segir í Morgunkorninu. „Á næsta ári spáum við enn sem fyrr verðbólgu í námunda við 2,5% markmið Seðlabankans. Teljum við að verðbólgan verði að jafnaði 2,3% á árinu 2011, en svo lítil hefur verðbólga ekki mælst hér á landi frá árinu 2003. Helstu forsendur fyrir þeirri spá eru að krónan haldist í námunda við núverandi gildi, hækkun launa í kjölfar kjarasamninga verði hófleg og að ekki verði veruleg hækkun á óbeinum sköttum og opinberum gjaldskrám næstu misserin. Þá gerum við ráð fyrir að íbúðaverð taki að hækka á ný þegar líður á komandi ár og hækki um tæplega 4% á næsta ári að meðaltali."
Mest lesið Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Sjá meira