Nike andlitshlífar búnar til á tveimur vikum Rakel Sveinsdóttir skrifar 7. maí 2020 11:00 Andlitshlífar Nike fyrir heilbrigðisstarfsmenn er eitt af fjölmörgum nýsköpunarverkefnum sem orðið hafa að veruleika á tímum kórónuveirunnar. Mun kraftur nýsköpunar, lausna og sveigjanleika lifa heimsfaraldurinn af?
Um síðustu mánaðarmót hafði Nike í Bandaríkjunum dreift og gefið um 290.000 sérútbúnar Nike andlitshlífar fyrir heilbrigðisstarfsmenn. Andlitshlífarnar voru útbúnar á tveimur vikum og gerðar úr efni sem Nike nýtir að öllu jöfnu fyrir framleiðslu á skóm og fatnað. Nike andlitshlífarnar eru enn eitt dæmið um nýsköpunarverkefni sem orðið hefur að veruleika í nú á tímum kórónufaraldurs. Stórfyrirtæki eins og Ikea, Apple og Ford hafa gert það sama þar sem framleiðslu var breytt til að búa til vörur og hlífðarbúnað fyrir heilbrigðisstarfsfólk. Í viðtali við FastCompany lýsir Michael Donaghu, yfirmaður nýsköpunar- og þróunarsviðs Nike, hvernig ferillinn gekk fyrir sig. Hugmynd að veruleika Allt fór þetta af stað einn mánudagsmorgunn þegar Michael þurfti að mæta á skrifstofuna eftir að hafa verið í fjarvinnu heima í kjölfar lokana hjá Nike og félagsforðunar. Verkefnið var: Beiðni frá spítala á svæðinu um það hvort Nike gæti útbúið andlitshlífar. Michael boðaði teymið sitt strax til fjarfundar. Þar voru hlutirnir ræddir til hlítar og þá fyrst og fremst hugað að því hvaða hráefni Nike hefði yfir að ráða sem hægt væri að nýta í andlitshlífar frekar en skó.Og hvaða tækjabúnaður réði við slíka framleiðslu? Að sögn Michael er lykilatriði í nýsköpun að tala ekki of mikið um hugmyndina, heldur vinda sér frekar í að búa til prótótýpu því hún sýnir bæði kosti og galla og er góð til að vísa veginn áfram. Hefðbundnu verklagi var fylgt eftir en í stað þess að kalla til íþróttafólk til að máta mismunandi tegundir af skóm, var fólk úr heilbrigðisgeiranum fengið til að máta nokkrar tegundir af andlitshlífum frá þegar þekktum framleiðendum. Að venju fer þessi mátun fram þannig að hún er tekin upp á myndband sem þróunarteymið nýtir síðan í áframhaldandi hugmynda- og hönnunarvinnu. Þægindi voru strax markmið og eins að auðvelt yrði að setja hlífina á sig, taka hana af eða sérstilla og strekkja að. Því var ákveðið að einfaldleikinn yrði í fyrirrúmi. Festishnappur úr jakkareim var notaður til að stilla hlífina og strekkja að. Mjúkur svampur úr strigaskóm til að hlífa enni. Á svampinn var sett örþunnt efni frá Dri-Fit fatalínu Nike til að forðast að svita. Hlífðarglerið sjálft er sveigjanlegt efni sem kallast TPU og er notað í Nike Air skósóla. Að sögn Michaels komu auðvitað upp nokkrar hindranir. Sú stærsta var að hlífðarglerið var ekki nógu gagnsætt og því fannst notendum erfitt að horfa í gegnum það strax á prófunarstiginu. Úr þessu var leyst á nokkrum dögum með aðstoð framleiðsluteymis birgja Nike því til viðbótar við starfsmenn Nike voru allir aðrir hluteigendur líka tilbúnir til að leggja verkefninu lið. Fór svo að á fimmtudeginum rúmri viku eftir að erindið barst fyrst á borð Nike voru andlitshlífarnar komnar í framleiðslu. Sú framleiðsla fór fram í Missouri en þar hafði verksmiðja Nike verið lokuð vegna fjarlægðarmarka. Það skipti því ekki máli hvar á framleiðslustiginu hlífin var, frá upphafi til enda nýttist tími starfsmanna, búnaður og aðstaða til verkefnisins því sjálf starfsemi Nike hafði verið hálf lömuð í samkomubanni. Í dag er búið að dreifa andlitshlífunum á um tuttugu spítala víðs vegar um Bandaríkin en að sögn Michaels hefur Nike engan hug á að stefna á frekari vöruþróun eða framleiðslu í þessa veru, eftir að kórónufaraldri lýkur. Þá má geta þess að stuttu eftir að verkefnið hófst hjá Nike, fylgdi Adidas í kjölfarið en þeir hafa einnig hannað andlitshlífar. Í atvinnulífi, heilbrigðis- og menntakerfinu hafa gífurlegar breytingar verið gerðar um heim allan síðastliðnar vikur. Í raun hefur allt breyst: Í vinnu, í námi, í hegðun. En nú spyrja margir: Mun þessi kraftur nýsköpunar, lausna og sveigjanleika lifa áfram þegar heimsfaraldri lýkur eða fer flest aftur í sama horf og áður?
Nýsköpun Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Viðskipti erlent Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Viðskipti innlent Krónísk óstundvísi: Skýringar og góð ráð Atvinnulíf Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að Atvinnulíf Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Neytendur Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Viðskipti erlent Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Viðskipti innlent Neytendur kunna að meta Landlaxinn og Landbleikjuna Samstarf Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viðskipti innlent Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Samstarf Fleiri fréttir Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að Krónísk óstundvísi: Skýringar og góð ráð „Ég var skíthrædd að senda þessa tölvupósta“ Ástin laðar að: Gott að vera kona á Íslandi, en ekki innflytjandi Forstjóri, snúsari, mótorhjólatöffari, veiðimaður og framúrskarandi á ryksugunni Endurgjöf: Það sem þú átt ekki að gera Eitruð vinnustaðamenning algeng og margfaldar líkur á kulnun „Enda hefði hún hreinlega ekki nennt að þræta við mig endalaust“ Ljúfustu stundirnar þegar allir eru saman í hjónarúminu Þrjú atriði til að auka á sjálfsöryggið okkar í vinnunni Tók fimm mánuði að byrja að tala íslensku Finnur þægilegu heimatilfinninguna þegar hann lendir í Keflavík „Einn mjög fárra karla á mínum aldri sem er ekki í golfi!“ Að vera bestur í teyminu er allt annað en að vera góður stjórnandi Kynslóðaskipti: Arftakaáætlunin virkjuð, vinnustaðaskóli og ný tækifæri fyrir starfsfólk 55-74 ára fjölgar hlutfallslega mest á vinnumarkaði „Ótrúlega vel gift honum Obba sem er A-manneskja“ Algengt að starfsfólk læri ekki af mistökum Hjón í nýsköpun: „Það er reyndar hún sem er Þjóðverjinn en ég Íslendingurinn“ Sjá meira