Viðskipti erlent

Svíar dæla milljörðum í atvinnulífið

Frederik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar.
Frederik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar.

Sænska ríkið ætla að dæla 8,3 milljörðum sænskra króna, jafnvirði nærri hundrað tuttugu og fimm milljörðum íslenskra króna, inn í sænskt atvinnulíf til að milda áhrif efnhagskreppunar á fyrirtæki og fjölskyldur. Þetta var tilkynnt í morgun.

Féð verður meðal annars sett í umfangsmiklar opinberar framkvæmdir. Þetta kemur sólahring eftir að sænski seðlabankinn tilkynnti að stýrivextir hefðu verið lækkaðir um eitt komma sjötíu og fimm prósentustig niður í tvö prósent.

Þetta mun mesta lækkun stýrivaxta þar í landi á einum degi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×