Viðskipti innlent

FME segir gengisdóm ekki ógna fjármálastöðugleika

Fjármálaeftirlitið (FME) mun strax hefja vinnu við mat á áhrifum gengisdóms Hæstaréttar á fjárhagsstöðu einstakra fjármálafyrirtækja.

Í tilkynningu frá eftirlitinu segir að mikilvægt sé að eyða allri óvissu um fordæmisgildi dómsins og áhrif hans á endurútreikning gengistryggðra lána.Ljóst er að niðurstaða dómsins mun hafa neikvæð áhrif innan kerfisins, en þó ekki að því marki að það ógni fjármálastöðugleika.

Áhrifin gætu orðið mismikil eftir fjármálafyrirtækjum og í sumum tilvikum gætu þau jafnvel verið óveruleg. Því er á þessari stundu ekki ljóst hver áhrif dómsins verða að lokum, að því er segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×