Kristján Arason sýknaður 2. júlí 2013 14:13 Kristján er fyrrverandi landsliðsmaður í handbolta og þjálfaði meistaraflokk FH þangað til í fyrravor.
Kristján Arason, fyrrverandi framkvæmdastjóri einkabankaþjónustu hjá Kaupþings, var í Héraðsdómi Reykjaness í dag sýknaður í máli slitastjórnar bankans gegn honum. Kristjáni var stefnt til að greiða 534 milljóna króna skuld vegna hlutabréfakaupa í bankanum. Kristján tók lánin í eigin nafni en færði hins vegar skuldina yfir í einkahlutafélagið 7 hægri ehf. í febrúar árið 2008. Það félag var tekið til gjaldþrotaskipta í desember tveimur árum síðar. Engar eignir fundust í búinu. Skuldin við Kaupþing stóð þá í rúmum tveimur milljörðum króna en Kristján var hins vegar í persónulegri ábyrgð upp á 534 milljónir. Í dómnum segir að lánssamningar Kaupþings við 7 hægri ehf., sem samþykktir voru af Hreiðari Má Sigurðssyni, forstjóra Kaupþings, og undirritaðir af tveimur framkvæmdastjórum á fyrirtækjasviði Kristjáns, séu skuldbindandi fyrir bankann að lögum. Þá segir ennfremur að Kristján hafði „réttmætar ástæður til að ætla að forstjóri Kaupþingssamstæðunnar hefði umboð til að samþykkja yfirfærslu lána hans til 7 hægri ehf. og lausn hans undan persónulegri greiðsluskyldu, sem og lausn hluta hlutafjáreignar stefnda undan veðböndum. Vísast um rök fyrir þeirri niðurstöðu til þess sem áður hefur verið rakið. Þá verður samkvæmt framangreindu ekki á það fallist að það hafi verið ólögmætt eða ámælisvert hjá stefnda [Kristjáni, innsk.blm.] að óska eftir yfirfærslunni og veðbandslausninni, en sjálfur tók hann engan þátt í að heimila þá löggerninga af hálfu bankans.“ Slitastjórninni var gert að greiða 2,5 milljónir í málskostnað.Lesa má dóminn hér.
Mest lesið Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Viðskipti innlent Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fleiri fréttir Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Sjá meira