Orange er með skrifstofulausnir fyrir alla 29. mars 2016 10:00 "Við byrjuðum með sautján skrifstofurými og tvö fundarherbergi. Í dag eru skrifstofurýmin 110 og fundarherbergin tíu," segir framkvæmdastjórinn Tómas Hilmar Ragnarz Mynd/Hanna
KYNNING - Orange Project býður upp á skammtíma- og langtímaleigu á fullbúnum skrifstofum af ýmsum stærðum og gerðum sem henta ýmiskonar rekstri. Fyrirtækið hóf starfsemi í september 2014 og hefur vaxið hratt, en það er byggt upp með svipuðum hætti og alþjóðafyrirtækið Regus sem rekur skrifstofuhótel um allan heim. „Við byrjuðum með sautján skrifstofurými og tvö fundarherbergi. Í dag eru skrifstofurýmin 110 og fundarherbergin tíu. Þá erum við með móttöku og setustofu auk þess sem stendur til að opna kaffihús í höfuðstöðvum okkar í Ármúla,“ segir framkvæmdastjórinn Tómas Hilmar Ragnarz.Tómas ásamt Kristjönu G. Kristjánsdóttur viðskiptastjóra (til vinstri) og Rakel Ósk Þorgeirsdóttur þjónustustjóra (fyrir miðju).Mynd/HannaStarfsemin er til húsa að Ármúla 4 og 6 og að Tryggvagötu 11 en að sögn Tómasar stendur til að opna á þremur stöðum til viðbótar á næstu misserum, þar á meðal í Kópavogi og Hafnarfirði. Hægt er að leigja bæði funda- og skrifstofuaðstöðu í allt frá klukkutíma og upp í þrjú til fjögur ár. Skrifstofurýmin eru af ýmsum stærðum og gerðum og fundaherbergin rúma allt að fimmtíu manns. „Við sjáum um allan skrifstofurekstur og viðskiptavinir geta því einbeitt sér að kjarnastarfsemi sinni. Innifalið í leigunni eru húsgögn, þráðlaust net, öll þrif, allt viðhald, sorphirða, öryggiskerfi, hiti og rafmagn, tryggingar, aðgangur að skönnum, prenturum og ljósritunarvélum svo eitthvað sé nefnt. Þá erum við með nóg af bílastæðum og aðgang að hleðslu fyrir rafbíla. Hér getur fólk svo gengið í ferska ávexti auk þess sem boðið er upp á míníbar með gosdrykkjum, söfum og meðlæti,“ upplýsir Tómas. Ýmsar sérlausnirBoðið er upp á sameiginlega móttöku en auk þess geta þeir sem vilja óskað eftir móttökuþjónustu og símsvörun. „Þá bjóðum við upp á reikningagerð, bókahalds- og endurskoðunarþjónustu fyrir þá sem vilja og tökum að okkur ýmis almannatengslamál,“ segir Tómas. Skrifstofurnar standa notendum opnar allan sólarhringinn allan ársins hring. Að sögn Tómasar er hægt að laga lausnirnar að fjölbreyttri starfsemi, fjárhag og mannfjölda. Fólk getur valið að vera með lokaða skrifstofu fyrir ákveðinn fjölda eða aðstöðu í opnu rými. Hægt er að fá allt frá fullbúinni skrifstofu yfir í skrifstofu sem er sniðin að óskum hvers og eins. Viðskiptavinum er svo alfarið í sjálfsvald sett hvort þeir velji sérlausnir á borð við símsvörun og bókhaldsþjónustu til viðbótar,“ útskýrir Tómas.Setustofan eða Business Lounge-ið var nýverið tekið í notkun.Óþrjótandi möguleikarHann segir líka hægt að vera með aðstöðu heima en skráð heimilisfang hjá OrangeProject og nýta þá fundarherbergin og opnu rýmin þegar við á. Tómas segir fundarherbergin sérstaklega hentug fyrir til dæmis stjórnar- og hluthafafundi auk þess sem þau séu upplögð fyrir fyrirtæki sem vilji skipta um umhverfi fyrir starfsfólk sitt til dæmis á starfsdögum eða í hópefli. „Eins er talsvert um að hér séu útibú frá fyrirtækjum úti á landi auk þess sem stærri fyrirtæki geta verið hér með útibú fyrir ákveðin verkefni. Þá er hægt að að kaupa aðgang að setustofunni eða Business lounge-inu, sem var verið að taka í notkun, og nýta með því opnu rýmin, kaffi- og prentaðstöðuna en slíkt gagnast til dæmis einyrkjum og ráðgjöfum sem vinna mikið úti í bæ. Eins er dagsleigan og fundaraðstaðan tilvalin fyrir félagasamtök og hagsmunafélög sem þurfa að hittast endrum og sinnum,“ segir Tómas. Hann segir möguleikana óþrjótandi enda eru fyrirtækin sem nýta aðstöðuna jafn fjölbreytt og þau eru mörg. „Við erum með „Startup“ fyrirtæki, ráðgjafafyrirtæki, tímaritaútgáfu, skartgripahönnuð, auglýsingastofu, lögfræðistofu, fasteignasölu og ferðaskrifstofu svo dæmi séu nefnd. Þá stendur til að opna nýja hæð um mánaðarmótin sem er aðeins hugsuð fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu enda mikill vöxtur í þeim geira. Hún verður í Ármúla og hefur fengið nafnið Orange Travel Center,“ upplýsir Tómas.Orange Project er til húsa að Ármúla 4 og 6 og Tryggvagötu 11.Mikið hagræðiAðspurður segir Tómas að þegar öllu sé á botninn hvolft fylgi því mikið hagræði að leigja aðstöðu hjá OrangeProject í stað þess að sjá um allan rekstur upp á eigin spýtur. „Viðskiptavinir okkar spara bæði tíma, fé og fyrirhöfn og þurfa aldrei að hafa áhyggjur af því að það vanti blekhylki í prentarann eða annað í þeim dúr. Fólk einfaldlega kemur og fer eins og því hentar og við sjáum um allt annað.“ Hann hvetur þá sem hafa áhuga á að hafa samband og kíkja í heimsókn. Ef fólk hefur áhuga gefum við föst tilboð í starfsemina til lengri eða skemmri tíma. Allar nánari upplýsingar er að finna á orangeproject.is og orangeproject.co Orange Project hefur verið tilneft til Nordic Startup Awards 2016. Til að gefa Orange Project þitt athvæði getur þú smellt hér ,valið ICELAND og flokkinn BEST OFFICE SPACE. Síðan er smellt á vote og hægt að deila með vinum.
Mest lesið Að endurskapa ásýndina á að vera skemmtileg vinna en ekki kvöð Atvinnulíf Áhorf á Eurovision hríðfellur Viðskipti innlent Rannsaka hvort Tesla hafi blekkt neytendur og fjárfesta Viðskipti erlent Taka bóluefni AstraZeneca úr sölu vegna dvínandi eftirspurnar Viðskipti erlent Ópíóíða, róandi- og svefnlyf: „Það geta allir orðið háðir þessum lyfjum ómeðvitað“ Atvinnulíf Kolefnasporlausir bílar fyrir 2030? Polestar er með plan Samstarf Hagnaðist um tæpa ellefu milljarða þrátt slæman búskap Viðskipti innlent „Fólk heldur kannski að það sé saklaust að kaupa eina falsaða tösku“ Atvinnulíf Miklar verðbólguvæntingar halda vöxtunum uppi Viðskipti innlent Gera þrjátíu til fjörutíu kaupsamninga á hverjum degi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kolefnasporlausir bílar fyrir 2030? Polestar er með plan Neytendur kunna að meta Landlaxinn og Landbleikjuna Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Tölum um neytendamál! Mættu tímanlega í pallaráðgjöf hjá BYKO Bíllinn leggur meðan ég fæ mér drykk - smart #3 reynsluakstur GreenCoat er umhverfisvænasta litaða stálklæðningin sem völ er á Nú er hægt að elta góða veðrið um landið með kortavef Já.is Einblína á trausta ávöxtun til langs tíma Fjölbreytt vöruúrval og ein bestu verð hérlendis Toyota sýnir úrvals fyrirtækjabíla á Verk og vit Nýr Toyota Yaris Hybrid frumsýndur á laugardag Leið eins og stjórnanda geimskips Hver verður iðnaðarmaður ársins 2024? Sjá meira