Miklar útstrikanir hjá Samfylkingu og Sjálfstæðisflokki 27. apríl 2009 06:00 Árni Johnsen „
Samkvæmt okkar útreikningum fellur Árni Johnsen niður um eitt sæti en það er þá landskjörstjórnar að skera endanlega úr um það,“ segir Karl Gauti Hjaltason, formaður yfirkjörstjórnar í Suðurkjördæmi. Að sögn Karls voru útstrikanir á Árna rúmlega eitt hundrað fleiri en þurfti til að færa hann úr öðru sæti í það þriðja á lista Sjálfstæðisflokksins. Árni sest engu að síður á Alþingi að nýju þar sem Sjálfstæðisflokkurinn fékk þrjá þingmenn í kjördæminu. Þá segir Karl að um átta prósent af kjósendum Samfylkingar hafi gert breytingar við nafn Björgvins G. Sigurðssonar, fyrrverandi viðskiptaráðherra úr Samfylkingu. Til þess að frambjóðandi færist niður um eitt sæti þurfa tuttugu prósent kjósenda þess lista að strika út nafn hans. „Það eru gífurlega miklar útstrikanir,“ segir Sveinn Sveinsson, formaður yfirkjörstjórnar í Reykjavíkurkjördæmi suður. Að sögn Sveins hlaupa atkvæði með útstrikunum á þúsundum í kjördæminu. „Það virðast vera álíka margar útstrikanir hjá stærstu flokkunum þremur,“ segir Sveinn sem kveður aukalið verða kallað saman til að fara yfir þessa atkvæðaseðla í dag. Alls kusu 36.926 í Reykjavík suður. Erla Svanhvít Árnadóttir, formaður yfirkjörstjórnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, segir að þar hafi um fjórtán prósent atkvæða verið með útstrikunum. Það gerir um fimm þúsund atkvæði af alls 36.400 atkvæðum í kjördæminu. „Flestar útstrikanir voru hjá Samfylkingu og næstflestar hjá Sjálfstæðisflokki,“ segir Erla. Hún telur ólíklegt að það náist að greiða úr útstrikuðu atkvæðunum í dag. Í Suðvesturkjördæmi voru einnig þúsundir atkvæða með útstrikunum. Jónas Þór Guðmundsson, formaður yfirkjörstjórnar, segir þær hafa verið flestar hjá Samfylkingu og Sjálfstæðisflokki en talsvert færri hjá Vinstri grænum. Jónas segist ekki geta fullyrt hvort um sé að ræða nægilegan fjölda útstrikana til að breyta röð frambjóðenda en telur það munu skýrast í dag. Í Norðausturkjördæmi var lítið um útstrikanir. Að sögn Ingu Þallar Þórgnýsdóttur, formanns yfirkjörstjórnar, voru nöfn Kristjáns Þórs Júlíussonar úr Sjálfstæðisflokki og Birkis Jóns Jónssonar úr Framsóknarflokki strikuð út á 200 til 300 seðlum hvort nafn. Þá hafi nafn Kristjáns Möllers, samgönguráðherra úr Samfylkingu, verið strikað út um 170 sinnum. Ingibjörg Hafstað í yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis segir útstrikanir þar hafa verið langt frá því nógu margar til að breyta röðum á framboðslistum. Þeir frambjóðendur sem hafi verið mest strikaðir út séu Ólína Þorvarðardóttir hjá Samfylkingu, Jón Bjarnason hjá Vinstri grænum og sjálfstæðismennirnir Einar K. Guðfinnsson og Ásbjörn Óttarsson. gar@frettabladid.is Björgvin G. Sigurðsson
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Innlent Fleiri fréttir Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Sjá meira