Kanna hvort Drómi hafi brotið lög Heimir Már Pétursson skrifar 2. júlí 2013 16:30 Frosti Sigurjónsson. Mynd/Valli
Frosti Sigurjónsson, þingmaður Framsóknarflokksins og formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, segir að Drómi gæti hafa gerst brotlegur við lög vegna endurútreiknings gengistryggðra lána. Á Alþingi í dag minnti hann einnig á að fjármálaeftirlitið hefði heimildir til að setja slitastjórnir fjármálafyrirtækja af. Katrín Júlíusdóttir þingmaður Samfylkingarinnar beindi þeirri fyrirspurn til Frosta á dögunum hvort hægt væri að aðstoða viðskiptavini Dróma; en svo virtist sem Drómi hefði reiknað niður gengistryggð lán tiltekins hóps viðskiptavina sinna með fyrirvara. Fyrirvarinn setti þennan hóp í töluverða óvissu um fjárhagslega framtíð sína og ekki væri vitað til þess að önnur fjármálafyrirtæki hefðu sett sams konar fyirvara við leiðréttingu gengistryggðra lána. „Viðskiptavinir Dróma eru því að þessu leyti í allt annarri og verri stöðu en viðskiptavinir annarra fjármálastofnanna. Reynist þetta rétt er tilefni til að kanna hvort slitastjórn Dróma hafi þar með brotið lög, einkum grein 101 a í lögum númer 161 frá árinu 2002 um fjármálafyrirtæki í slitameðferð,“ sagði Frosti á Alþingi í dag. Þar kæmi fram að Fjármálaeftirlitinu bæri að hafa eftirlit með rekstri fyrirtækja eins og Dróma. Í lögum segi að framganga fjármálafyrirtækja gagnvart viðskiptavinum sínum skuli vera í samræmi við það sem almennt tíðkist hjá fjármálafyrirtækjum. „Fjármálaeftirlitinu er heimilt að beina kröfu til héraðsdóms um að víkja skuli slitastjórn. Efnahags- og viðskiptanefnd hefur fundað bæði Fjármálaeftirlitinu og Dróma og í framhaldi sent Fjármálaeftirlitinu bréf með spurningum varðandi þetta mál, þar sem þess er óskað að svarað verði eigi síðar en á morgun, 3. júlí,“ sagði Frosti Sigurjónsson formaður efnahags og viðskiptanefndar Alþingis.
Mest lesið Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Viðskipti innlent Vekja athygli á innköllun leikfangs Neytendur Out of Office póstarnir: Þeir bestu og þeir glötuðustu Atvinnulíf Fleiri fréttir Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Sjá meira