Höfuðstöðvar flytja líklega til Ameríku Helgi Vífill Júlíusson skrifar 6. febrúar 2019 07:30 "Reksturinn á síðasta ári var alveg frábær. Hann hefur aldrei verið eins góður,“ segir Ágúst Einarsson, framkvæmdastjóri Tempo. Fréttablaðið/Anton Brink
Það er mjög líklegt að höfuðstöðvar Tempo verði fluttar til Bandaríkjanna. Þar er okkar stærsti markaður og eigendur meirihluta félagsins eru í Los Angeles. Við munum áfram reka öflug dótturfélög í Reykjavík og Montreal í Kanada,“ segir Ágúst Einarsson, framkvæmdastjóri Tempo, í samtali við Markaðinn. Fjárfestingafélagið Diversis Capital keypti 55 prósenta hlut í Tempo af Origo, sem áður átti hugbúnaðarfyrirtækið að fullu, í nóvember fyrir 34,5 milljónir dollara, jafnvirði 4,2 milljarða króna. Eigendurnir munu sameiginlega leggja Tempo til tvær milljónir dollara, jafnvirði 241 milljónar króna. Jafnframt hafa þeir lýst yfir vilja til að styðja við innri og ytri vöxt félagsins á næstu árum, eftir því sem tækifæri gefast. Diversis Capital tilefnir þrjá í stjórn Tempo en Origo tvo. „Þeir fara með meirihluta í félaginu og vinna mjög náið með okkur á mörgum sviðum. Þeir horfa til tækifæra í innri vexti – við teljum að hann verði áfram um 30-35 prósent á ári – og mögulega að yfirtaka önnur fyrirtæki. Við fáum stuðning til að hraða vextinum enn frekar en verið hefur,“ segir Ágúst. Origo leitaði að meðfjárfesti í tvö ár og hitti Ágúst yfir 100 fjárfestingasjóði staðsetta í Evrópu og Bandaríkjunum í því skyni. „Hugmyndin var að sjóðurinn væri ekki of stór til þess að við myndum fá næga athygli og stuðning frá honum. Sjóðurinn þurfti að vera sérhæfður á þeirri syllu sem við störfum á og hafa sýnt fram á góðan árangur. Síðast en ekki síst þurfti starfsfólk okkar og þeirra að smella saman. Þetta allt fengum við frá Diversis Capital. Við erum stærsta fjárfesting þeirra og þeir eru afar áhugasamir um reksturinn,“ segir hann.Tíu ára saga Ágúst segir að fyrir tíu árum hafi fámennt teymi innan TM Software, sem var í eigu Nýherja og sameinaðist síðar í Origo, smíðað einfaldan hugbúnað til að sinna tímaskráningum sem fyrst og fremst hafi verið notaður af starfsmönnum. „Við fórum síðar að skima eftir tækifærum og hófum samstarf við Atlassian. Þeirra hugbúnaður, sem snýr að vinnu- og verkefnastjórnun, er í skýinu. Önnur hugbúnaðarfyrirtæki geta þróað viðbætur, eins og við höfum gert. Á þeim tíma var Atlassian lítið og ungt fyrirtæki en veltan hefur vaxið um 40-50 prósent á hverju ári og við höfum fylgt þeim vexti. Tekjur Tempo hafa vaxið um 30-35 prósent á ári. Þær hafa vaxið úr engu í að vera 22 milljónir dollara, jafnvirði 2,6 milljarða króna, á síðasta ári. Starfsmenn eru orðnir rúmlega 100 í þremur löndum. Nær alla tekjurnar eða 99 prósent koma erlendis frá en við erum með 13 þúsund viðskiptavini. Atlassian er með með 134 þúsund viðskiptavini en þar af eru 65 þúsund sem nota Jira og geta þar af leiðandi notað okkar hugbúnað. Á undanförnum tveimur árum höfum við verið að undirbúa að tengjast fleiri kerfum á borð við Jira til að vaxa enn frekar. Það eru færri en tíu slík kerfi sem rökrétt væri fyrir okkur að vera í. Við endurskrifuðum vöruna fyrir Amazon Web Services (AWS) og getum því auðveldlega sótt í önnur kerfi sem eru í skýinu.“Keyptu lítið fyrirtæki í MontrealHefur Tempo áður ráðist í yfirtöku? „Við yfirtókum lítið fyrirtæki í Montreal í Kanada fyrir þremur árum. Það var grunnurinn að uppbyggingunni þar í landi. Starfsmenn þar eru orðnir um 50.“Til hvernig fyrirtækja er horft varðandi yfirtöku? „Þrjár tegundir fyrirtækja koma til greina. Í fyrsta lagi fyrirtæki sem myndi auka markaðshlutdeild okkar hjá Jira. Í öðru lagi fyrirtæki sem myndi hraða vegferð okkar við að byggja upp viðskipti í öðru kerfi því þá þurfum við ekki að byrja frá grunni. Í þriðja lagi kemur til greina að kaupa áhugaverða gervigreindartækni sem eykur sjálfvirkni.“Er engin hætta á að Atlassian hætti að vaxa svona hratt? „Atlassian er metið af rannsóknarfyrirtækjum það allra besta í þessum geira. Um er að ræða nýja kynslóð af hugbúnaði í skýinu sem skákar keppinautnum. Við höfum mikla trú á áframhaldandi vexti hjá þeim.“Nánast hundaheppniVar það ígrunduðuð stefnumiðuð ákvörðun að hefja samstarf við Atlassian eða hundaheppni? „Það má alveg segja að þetta hafi nánast verið hundaheppni. Fyrir tíu árum var Atlassian lítið fyrirtæki frá Ástralíu en okkur þótti varan spennandi. Það hefur verið frábært að vinna með þeim. Þeim vegnar vel og eiga meðal annars hlut í og eru í nánu samstarfi við Slack sem margir þekkja.“ Slack er spjallforrit fyrir vinnustaði og er metið á 767 milljarða króna.Hvernig hefur rekstur Tempo gengið samhliða miklum vexti? „Reksturinn á síðasta ári var alveg frábær. Hann hefur aldrei verið eins góður. Ég vil ekki gefa upp hver hagnaðurinn var en EBITDA, hagnaður fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta, sem hlutfall af tekjum var um tíu prósent.“Hver er lykillinn að því? „Við höfum verið varkár þegar kemur að vextinum og gætt þess að ráða ekki starfsfólk nema tryggt sé að auknar tekjur séu handan við hornið. Auk þess hefur okkur auðnast að velja réttu verkefnin sem hafa skilað góðri afkomu.“Krónan er sterk og laun hér á landi eru há, hefur ekki reynst dýrt að hafa Íslendinga á launaskrá í alþjóðlegri samkeppni? „Þetta var erfitt á árinu 2017 en krónan hefur veikst að undanförnu sem hefur bætt stöðuna. En það er einmitt ástæðan fyrir því að starfsmönnum hefur fjölgað hratt í Montreal. Þar kostar minna að framfleyta fjölskyldu og launin eru lægri. Því til viðbótar eru þar margir háskólar og því er greiður aðgangur að öflugu starfsfólki á meðan það er harðar barist um starfsfólk á Íslandi.“ Aðspurður segir Ágúst að í Kanada fáist 25 prósent endurgreiðsla af kostnaði við rannsóknir og þróun án þaks en hérlendis sé hlutfallið 20 prósent og þak. Fyrir liggur frumvarp um að hækka þakið í 600 milljónir úr 300 milljónum króna.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Viðskipti innlent Fyrsta apótek Víkur opnað Viðskipti innlent Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Viðskipti innlent Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Viðskipti innlent Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Viðskipti erlent Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Viðskipti erlent Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Innlent Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Innlent Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Viðskipti erlent Fleiri fréttir María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records Sjá meira