Ingi Þór bætti metið yfir lengstu sigurtíð þjálfara Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. maí 2019 15:45 Ingi Þór Steinþórsson kyssir Íslandsbikarinn sem hann fékk fyrst í fangið fyrir 19 árum síðan. Vísir/Daníel
Ingi Þór Steinþórsson gerði KR að Íslandsmeisturum í körfubolta á laugardaginn og setti þar með nýtt met. Þá voru liðin nítján ár síðan að KR varð fyrst Íslandsmeistari undir stjórn Inga Þórs. Ingi Þór gerði KR að meisturum á sínu fyrsta tímabili sem aðalþjálfari í Vesturbænum tímabilið 1999 til 2000. Síðan eru liðin næstum því tveir áratugir en líkt og tímabilið 1999-2000 þá var þetta fyrsta tímabil þessa KR-liðs undir stjórn Inga Þórs en hann tók við liðinu síðasta sumar. Finnur Freyr Stefánsson hafði gert KR að Íslandsmeisturum fimm ár á undan. Ingi Þór bætti með þessu met ÍR-ingsins Einars Ólafssonar sem gerði ÍR sjö sinnum að meisturum á tólf árum frá 1963 til 1975. Fyrsta tímabilið stýrði Einar Ólafsson ÍR-liðinu ásamt Helga Jóhannssyni. Helgi Jóhannsson gerði ÍR átta sinnum að Íslandsmeisturum og er sá þjálfari sem hefur unnið oftast Íslandsmeistaratitil karla í körfubolta. Þegar kemur að titlum í úrslitakeppni þá var Ingi Þór að bæta met Sigurðar Ingimundarsonar sem gerði Keflavík að meisturum með ellefu ára millibili en Sigurður vann sinn fyrsta titil með Keflavík 1997 og þann fimmta vorið 2008.Lengstu sigurtíðir þjálfara í baráttu um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta: 19 ár - Ingi Þór Steinþórsson (KR 2000 og KR 2019) 12 ár - Einar Ólafsson (ÍR 1963 - ÍR 1975) 11 ár - Sigurður Ingimundarson (Keflavík 1997 - Keflavík 2008) 10 ár - Helgi Jóhannsson (ÍR 1954 - ÍR 1964) 8 ár - Valur Ingimundarson (Njarðvík 1987 - Njarðvík 1995) 7 ár - Friðrik Ingi Rúnarsson (Njarðvík 1991 - Njarðvík 1998)
Dominos-deild karla Mest lesið Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Körfubolti Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Fótbolti Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Körfubolti „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Fótbolti Sjáðu þrennu Barcola og alla markasúpuna í Austurríki Fótbolti Eva bætti hvert metið á fætur öðru Golf Fleiri fréttir Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Kokkur í vandræðum með hráefni eldi aldrei gæðamáltíð Allt annað að sjá Helenu í dag: „Gríðarlegur kraftur í henni“ Uppgjörið: Ármann - Valur 78-89 | Valskonur aftur á sigurbraut Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Dísætur sigur Stjörnunnar en bilið breitt í Keflavík og á Króknum Uppgjörið: KR-Njarðvík 97-115 | Fyrsta tap KR-inga gegn Íslandsmeisturunum Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Tryggvi Snær og félagar aftur á sigurbraut Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Líktu Álftanesi við Bayern München Hafði betur í spænska Íslendingaslagnum Óvænt truflun í Njarðvík „Náðum að auka tempóið í seinni hálfleik“ „Viðhorf leikmanna angrar mig“ Áfall fyrir Tindastól: „Ég er ekki læknir en þetta leit illa út“ Uppgjörið Grindavík - KR 80-91 | KR jók hraðann í seinni hálfleik og innbyrti sigur „Erfitt að koma í þetta hús og sækja sigur“ Reikna með Kane en vita ekki hvenær „Menn eru að reyna að vera með ábyrgan rekstur“ 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ „Þetta eru alvöru hermenn“ „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ „Annars er mér bara fokking drullusama“ Uppgjörið: Sindri - ÍR 91-97| ÍR hélt út óvæntan spennutrylli í restina Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Sjá meira