Jól

Jólalag dagsins: Notalega jólalagið Notalegt með meðlimum GÓSS

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sigríður Thorlacius, Sigurður Guðmundsson og Guðmundur Óskar fóru í tónleikaferð um landið í sumar.
Sigríður Thorlacius, Sigurður Guðmundsson og Guðmundur Óskar fóru í tónleikaferð um landið í sumar.
Fjórði desember er runninn upp og því 20 dagar til jóla. Á sjónvarps- og útvarpsvef Vísis má finna fjölmörg hugljúf jólalög sem margir af okkar fremstu listamönnum hafa tekið í gegnum tíðina.

Vísir ætlar að telja niður til jóla með fallegu jólalagi úr safni sínu á hverjum degi.

Í dag býður Vísir upp á lagið Notalegt með þeim Sigríði Thorlacius, Sigurði Guðmundssyni og Guðmundi Óskari.

Lagið var flutt í Bjánalega stóra þætti Loga á Stöð 2 árið 2016.






×