Jól

Heimagerður brjóstsykur

Sólveig Gísladóttir skrifar
Eyþór og Ása með börnum sínum Emmu 12 ára, Ara Ævari 6 ára, Guðrúnu Árnýju og Ernu Óðnýju fimm mánaða.
Eyþór og Ása með börnum sínum Emmu 12 ára, Ara Ævari 6 ára, Guðrúnu Árnýju og Ernu Óðnýju fimm mánaða. Mynd/Stefán
Eyþór Árnason og Ása Óðinsdóttir hafa undanfarin ár búið til brjóstsykur á aðventunni.

"Við byrjuðum á að prófa að búa til brjóstsykur heima fyrir átta árum. Þá var Emma okkar fjögurra ára en gat samt hjálpað okkur og fannst það ofsalega spennandi. Síðustu fjögur árin höfum við hins vegar búið til brjóstsykur og annað góðgæti í góðra vina hópi,“ segir Ása og bendir á að brjóstsykursgerðin sé afar skemmtilegt samvinnuverkefni.

Í ár var fjölskyldan aftur ein á báti. „Við eignuðumst tvíburadætur í sumar og þær eru enn það litlar að við erum varla húsum hæf. Við ákváðum því að vera bara í rólegheitum hér heima,“ segir Ása glaðlega. Þau hjónin eiga því fjögur börn í allt. „Já, litla dúllan í restina varð að tveimur dúllum,“ segir hún hlæjandi en bætir við að þrátt fyrir upphaflegt sjokk hafi verið mun minna mál að eiga tvíbura en þau héldu.

Girnilegir molar
Ekkert vesen

Brjóstsykursgerðin er einföld að mati þeirra hjóna. „Það eina sem þarf er desilítramál og sykur,“ segir Eyþór glettinn en Ása bætir við; „Maður þarf þrúgusykur og sykur, pott og silíkonmottu til að setja brjóstsykurinn á. Auk þess bragðefni og hitamæli,“ telur hún upp og áréttir að startkostnaðurinn í þennan heimilisiðnað sé ekki mikill.

„Við kaupum þrúgusykurinn og bragðefnin á vefsíðunni slikkeri.is sem sérhæfir sig í þessu. Þar er líka hægt að kaupa alla fylgihluti og fá leiðbeiningar og uppskriftir,“ segir Eyþór.

Þau eru beðin að lýsa ferlinu í grófum dráttum. „Við blöndum saman sykri og þrúgusykri í pott með smá vatni. Látum sjóða þar til blandan nær 158 gráðum. Þá slekkur maður undir og leyfir hitanum að hækka upp í 165 gráður. Þá er blöndunni hellt á silíkonmottu, eða stórt silíkonbökunarform eins og ég nota, og litar- og bragðefnum blandað saman við. Fyrst er þetta hrært með stórum spöðum og síðan hnoðað. Þetta tekur enga stund og er ekkert vesen,“ lýsir Ása.

Skrítnir molar skemmtilegir

Ása og Eyþór segja krakka hafa mjög gaman af brjóstsykursgerðinni þó vissulega þurfi að passa þau vel meðan verið er að hita sykurinn. „Þegar blandan er hæfilega köld fá þau að klippa deigið niður í hæfilega búta,“ segir Eyþór. „Skemmtilegast finnst þeim samt að ákveða hvaða bragð eigi að vera af brjóstsykrinum,“ segir Ása en ýmsar skrítnar samsetningar hafa orðið til í gegnum tíðina. 

„Við höfum prófað alls konar vitleysu, blöndum saman bragðtegundum og fáum þannig brjóstsykur sem fæst hvergi annars staðar,“ segir hún. Innt eftir skrítnasta molanum segja þau líklegt að það hafi verið sá með piparkökubragðinu. „Það virkaði ekki vel,“ segir Eyþór og hlær.

Hlaup og karamella

Tegundirnar urðu heldur færri í ár en undanfarin ár enda í nógu að snúast með fimm mánaða tvíbura. „Í ár gerðum við tvær tegundir, annars vegar karamellu-piparmintu og hindberja.“

Iðulega gerir fjölskyldan líka karamellu og hlaup á sama tíma og brjóstsykurinn. „Innihaldsefnin eru mjög svipuð í brjóstsykrinum og hlaupinu og því tilvalið að gera þetta tvennt samhliða. Við klippum hlaupblönduna niður og sykurhúðum. Þannig verður þetta ægilega gott,“ lýsir Ása

Hvað verður svo um allt þetta sætmeti? „Bæði borðum við þetta heima en látum líka poka fylgja með jólapökkunum.“






×