Viðskipti innlent

Kaupmannahöfn, Lundúnir, París, Berlín, Alícante og Tenerife

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Líklegt þykir að rauðar vélar Play muni fljúga til fjögurra evrópskra stórborga og tveggja sólarstranda innan tíðar.
Líklegt þykir að rauðar vélar Play muni fljúga til fjögurra evrópskra stórborga og tveggja sólarstranda innan tíðar. Play
Evrópsku áfangastaðirnir sex sem Play horfir til í upphafi eru Kaupmannahöfn, Lundúnir, París, Berlín, Alícante og Tenerife. Flugfélagið segist þegar hafa náð samkomulagi um lendingartíma á flugvöllum áfangastaðanna. Upplýsingafulltrúi félagsins vill þó ekki taka jafn djúpt í árinni.

Eins og fram kom á blaðamannafundi Play á þriðjudag verður í upphafi stuðst við tvær Airbus-þotur til að sinna áætlunarflugi félagsins. Arnar Már Magnússon, forstjóri Play, sagði að fyrst væri horft til sex áfangastaða í Evrópu, þar af til tveggja sólarferðastaða.

Með vorinu er ætlunin að vélum félagsins fjölgi í sex og þá muni Play jafnframt hefja áætlunarflug til fjögurra borga í Bandaríkjunum. Í fjárfestakynningu, sem Íslensk verðbréf kynntu íslensku fjárfestum í síðustu viku, eru evrópsku borgirnar tilgreindar, fyrrnefndu borgirnar sex, að því er fram kemur á Kjarnanum.

Þar segir jafnframt að viðræður séu hafnar við flugvelli á þessum áfangastöðum og að Play hafi þegar útvegað sér afgreiðslutíma á völlunum. Flugfélagið hafi þar að auki samið um eldsneytiskaup við BP og verðið sé fast hálft ár fram í tímann, sem skapi fyrirsjáanleika í rekstrinum. Þá sé Play búið að ná hagstæðari samningum um viðhald á Airbus-vélum félagsins en WOW air bjó við á sínum tíma, aukinheldur muni flugafgreiðsla í Keflavík vera í höndum „nýs aðila“ sem bjóði áður óþekkt kjör.

Upplýsingafulltrúi Play dregur þó aðeins í land í samtali við Morgunblaðið. Áætlanir geti enn breyst en þó styttist í að leiðakerfi Play verði endanlega staðfest. Hún tekur þó fram að ekki sé verið að horfa til annarra áfangastaða á þessari stundu en þeirra sem nefndir eru hér að framan.


Tengdar fréttir

Play útskýrir frímiðaleikinn

Frímiðaleiknum, sem flugfélagið Play hyggst standa fyrir á næstu vikum, mætti einna helst líkja við páskaeggjaleit.

Play kynnt til leiks

Nýtt íslenskt flugfélag mun hefja sig til flugs á næstu mánuðum.

Starfsmenn Play megi búast við lægri launum og meiri vinnu

Þau sem sótt hafa um stöðu flugliða og flugmanna hjá flugfélaginu Play mega gera ráð fyrir að fá lægri laun en starfsmenn WOW air fengu á sínum tíma. Að sama skapi geta þau átt von á því að vinna meira en sambærilegir starfsmenn Icelandair.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×