Makamál

Rúmlega þriðjungur karla segist ekki nota kynlífstæki

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Karlmenn nota aðallega kynlífstæki með bólfélaga meðan flest allar konur sem svöruðu könnuninni segjast nota kynlífstæki bæði einar og með bólfélga.
Karlmenn nota aðallega kynlífstæki með bólfélaga meðan flest allar konur sem svöruðu könnuninni segjast nota kynlífstæki bæði einar og með bólfélga.
Afhverju ætli það sé litið öðruvísi á karlmenn sem kaupa sér kynlífstæki en konur?

Makamál spurðu lesendur Vísis í síðustu viku: Notar þú kynlífstæki?

Settar voru í loftið tvær kannanir og fólk beðið að svara eftir kyni en alls tóku 2000 manns þátt. 

Ef við leyfum okkur að draga einhverjar ályktanir út frá þessum niðurstöðum má segja að karlmenn séu aðallega að nota kynlífstæki með bólfélaga en ekki einir á meðan flest allar konur segjast nota kynlífstæki bæði einar og með bólfélaga. 

Makamál hringdu í Gerði eiganda Blush kynlífstækjabúðar og spurðu hana aðeins um málið. 

Gerður sagði að karlmenn væru miklu ragari við að versla kynlífstæki handa sjálfum sér og væru aðallega að kaupa fyrir sig og makann þegar þeir kæmu í búðina. En þeir sem kaupa kynlífstæki eins og múffur og annað sem er ætlað karlmönnum eru þeir miklu líklegri til að versla í gegnum netið. 

Við töluðum um mögulegar ástæður fyrir þessum mun og sagði Gerður ástæðuna líklegast vera þá að samfélagið liti einhvern veginn öðrum augum á karlmenn sem kaupa sér kynlífstæki heldur en konur. 

Það er orðið sjálfsagður hlutur að konur komi saman í kynlífstækjaverslun og versli á meðan karlmenn eru frekar að laumast til þess að kaupa í gegnum netið. 

Hægt er að sjá nákvæmari niðurstöður hér fyrir neðan. 

Niðurstöður*:

KONUR:

Já,  bæði ein og með bólfélaga - 57%

Já, en bara ein – 16%

Já, en bara með bólfélaga - 10

Nei, en langar -8%

Nei, hef ekki áhuga – 9%

KARLAR:

Já,  bæði einn og með bólfélaga – 27%

Já, en bara einn – 6%

Já, en bara með bólfélaga – 31%

Nei, en langar – 17%

Nei, hef ekki áhuga -19%

Makamál mættu í Brennsluna á föstudagsmorgun og ræddu niðurstöðurnar. Hægt er að hlusta á líflegar umræður og kynningu á næstu spurningu vikunnar hér fyrir neðan.

* Tekið skal fram að niðurstöður byggjast eingöngu á svörum lesenda Vísis og því ekki hægt að alhæfa um niðurstöður. Kannanir Makamála eru ætlaðar til skemmtunar og til að vekja umræðu og athygli á ýmsum málefnum. 


Klippa: Brennslan - Makamál: Ósanngjarnt líta á karlmenn sem perra sem kaupa sér kynlífshjálpartæki á meðan konur geta nánast notað titrara sem eyrnalokk

Tengdar fréttir

Bréfið: Giftur konu en stundar kynlíf með körlum

"Ég á eitt risavaxið leyndarmál sem ekki einu sinni mínir nánustu vinir vita og ég efast um að einhver muni nokkurn tíma komast að.“ Segir giftur gagnkynhneigður karlmaður á fertugsaldri sem talar um þrár sínar og langanir til þess að stunda kynlíf með karlmönnum.

Einhleypan: Sesar A, vel uppalinn, vel máli farinn

Eyjólfur B. Eyvindarson, betur þekktur sem rapparinn Sesar A, er Einhleypa Makamála þessa vikuna. Sesar hefur í gegnum tíðina skapað sér nafn sem tónlistarmaður og rappari en þess má geta að hann er eldri bróðir Erps Eyvindarsonar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×