Matur

Æðislega góður blómkálsréttur

Elín Albertsdóttir skrifar
Einfaldur blómkálsréttur með indversku ívafi.
Einfaldur blómkálsréttur með indversku ívafi. NORDICPHOTOS/GETTY

Hér er mjög góður og bragðgóður blómkálsréttur við flestra hæfi. Túrmerik gefur honum gylltan blæ en þetta er indverskur réttur sem hægt er að borða sem aðalmáltíð eða með kjöti eftir smekk.

1 blómkálshöfuð, u.þ.b. 500 g

400 g kartöflur

1 laukur, smátt skorinn

1 rauð paprika

1 msk. olía

1 msk. cumin

½ msk. kóríanderduft

2 tsk. kardimommuduft

1 tsk. túrmerik

4 hvítlauksrif, smátt söxuð

3 msk. tómatpuré

2 dl vatn

400 ml kókosmjólk

1 msk. sykur

40 g fersk engiferrót

400 g kjúklingabaunir

1 límóna, aðeins börkurinn

Smávegis salt

25 g smjör

Takið blómkálið í sundur, skrælið kartöflurnar og skerið í bita. Hitið olíu á pönnu og steikið lauk ásamt öllu kryddinu sem upp er talið. Bætið þá við hvítlauk, tómatpuré og niðurskorinni papriku, steikið áfram og hrærið á meðan. Bætið þá við blómkáli, kartöflum, vatni og kókosmjólk. Sjóðið upp og bragðbætið með salti og sykri.

Rífið engifer út í pottinn og límónubörkinn. Sjóðið áfram þar til kartöflurnar verða mjúkar í að minnsta kosti 15 mínútur. Þá eru kjúklingabaunir settar saman við. Það er gott að setja smá límónusafa líka. Látið suðuna aftur koma upp og sjóðið smá stund.

Setjið smjörið út í.

Berið fram til dæmis með hrísgrjónum og naan-brauði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×