Heimurinn dofinn gagnvart blóðbaðinu í Sýrlandi Heimsljós kynnir 30. júlí 2019 10:30 Ocha/Héðinn Halldórsson
Michelle Bachelet mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna veltir því fyrir sér hvort heimurinn sé orðinn algerlega dofinn gagnvart linnulausum árásum í Sýrlandi. Hún segir að nýlegum mannskæðum loftárásum sé mætt með almennu tómlæti og gagnrýnir sérstaklega valdamestu þjóðir heims. „Þrátt fyrir ítrekað ákall Sameinuðu þjóðanna um þá meginreglu að fyllstu varúðar sé gætt í ófriði, hefur þessi síðasta hrina loftárása af hálfu ríkisstjórnarinnar og bandamanna hennar dunið á sjúkrahúsum, skólum, mörkuðum og öðrum borgaralegum stofnunum,“ segir Michelle Bachelet og bætir við að afar ólíklegt sé að skotmörkin séu tilviljunum háð. Rúmlega 400 þúsund manns hafa lent á vergangi vegna loftárása í norðvesturhluta Sýrlands á síðustu þremur mánuðum og hermt er að 740 óbreyttir borgarar hafi fallið. „Loftárásir drepa þó nokkurn fjölda óbreyttra borgara í hverri viku og viðbrögðin einkennast af tómlæti,“ segir hún. Fulltrúar alþjóðlegra hjálparsamtaka í Sýrlandi hafa lýst síðasta blóðuga kaflanum í átta ára stríði sem algerri martröð. „Skipulagðar árásir gegn óbreyttum borgurum eru stríðsglæpir og þeir sem fyrirskipa þá og framkvæma eru ábyrgir,“ segir Michelle Bachelet. Á síðustu tíu dögum hefur mannfall í átta árásum á Idlib og tveimur í Aleppi kostaði 103 lífið, þar af um 26 börn. Mannréttindastjórinn óttast að blóðbaðið í Sýrlandi sé horfið af alþjóðlegu ratsjánni. „Það er bráðnauðsynlegt að hætta öllum hernaðaraðgerðir til að gefa pólitískum samningaviðræðum andrými. Hinn kosturinn er áframhald á tilgangslausum dauða og tortímingu í stríði án endis,“ segir hún.Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Mest lesið Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Innlent Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Erlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Erlent Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Innlent Deilt um verðhækkanir Veitna Innlent Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Innlent Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Erlent Hljóp á sig Innlent Íslendingur handtekinn á EM Innlent