Viðskipti erlent

Fyrrverandi forstjóri Audi ákærður vegna útblásturssvindlsins

Kjartan Kjartansson skrifar
Stadler er sagður hafa neitað sök.
Stadler er sagður hafa neitað sök. Vísir/EPA
Þýskir saksóknarar í München lögðu fram ákærur á hendur Rupert Stadler, fyrrverandi forstjóra bílaframleiðandans Audi, vegna aðildar hans að svindli Volkswagen á útblástursprófum. Ákæran er meðal annars vegna svika og falskra auglýsinga, að sögn Reuters-fréttastofunnar.

Stadler var handtekinn í júní í fyrra í tengslum við viðamikla rannsókn á útblásturssvindli Audi sem er hluti af Volkswagen-samstæðunni. Hann var fangelsaður í nokkra mánuði og var síðar rekinn. Ákærurnar gegn Stadler og þremur öðrum sakborningum varða um 250.000 Audi-bifreiðar, 112.000 Porsche og 72.000 Volkswagen-bíla sem voru seldir í Evrópu og Bandaríkjunum.

Volkswagen gekkst við því að hafa notað ólöglegan hugbúnað til að svindla á prófum eftirlitsaðila sem mældu útblástur dísilbíla í september árið 2015. Menguðu bílarnir mun minna í prófunum en þegar þeir voru komnir á götuna. Martin Winterkorn, fyrrverandi forstjóri Volkswagen, var ákærður í apríl. Hneykslið hefur kostað Volkswagen jafnvirði um fjögur þúsund milljarða íslenskra króna.

Audi viðurkenndi tveimur mánuðum síðar að dísilbílar sem seldir voru undir vörumerkinu hafi verið með ólöglega hugbúnaðinn. Saksóknararnir segja að Stadler hafi verið kunnugt um svindlið frá því í lok september 2015 í síðasta lagi. Hann hafi enga að síður ekki komið í veg fyrir sölu á Audi- og Volkswagen-bifreiðum eftir að hann öðlaðist þá vitneskju.

Auk Stadler er Wolfgang Hatz, fyrrverandi stjórnandi hjá Audi og Porsche, og tveir verkfræðingar sem hönnuðu vélarnar ákærðir. Hatz hefur einnig setið í fangelsi vegna aðildar sinnar að útblásturssvindlinu. Rannsókn stendur enn yfir á 23 sakborningum til viðbótar.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×