Eyðing Amasonfrumskógarins hátt í tvöfaldast undir Bolsonaro Kjartan Kjartansson skrifar 4. júlí 2019 11:27 Amazonfrumskógurinn bindur gríðarlegt magn kolefnis. Gengið er á hann hratt með ólöglegu skógarhöggi og búgriparækt. Vísir/EPA
Um 920 ferkílómetrum Amasonskógarins í Brasilíu var eytt í síðasta mánuði en það er 88% aukning frá sama mánuði í fyrra. Gagnrýnendur Jairs Bolsonaro, forseta Brasilíu, fullyrða að árásir hans á umhverfisstofnun landsins gefi skógarhöggsmönnum og búgarðseigendum byr undir báða vængi að ganga á skóginn. Gögn brasilísku geimvísindastofnunarinnar benda til þess að skógareyðing í Amason hafi numið 4.565 ferkílómetrum á ellefu mánuðum frá síðasta sumri. Það er 15% aukning frá sama tímabili árið áður, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Bolsonaro forseti hefur boðað stórfellda nýtingu á Amasonfrumskóginum frá því að hann tók við embætti í janúar. Þá hefur hann gagnrýnt umhverfisstofnun landsins harðlega fyrir að gefa út of margar sektir vegna skógarhöggs þar. Ricardo Salles, umhverfisráðherra Brasilíu, segir að gripið verði til aðgerða til að taka á ólöglegu skógarhöggi. Þrýstingur er á brasilísk stjórnvöld að koma í veg fyrir eyðingu Amasonskógarins. Þannig eru ákvæði um það að finna í fríverslunarsamningi sem Evrópusambandið og Mercosur, efnahagsbandalag Suður-Ameríkuríkja, handsöluðu í síðustu viku.
Brasilía Loftslagsmál Mest lesið Eldur logar í þaki Kringlunnar Innlent Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Innlent Katrín kemur fram í fyrsta sinn frá krabbameinsgreiningu Erlent Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Innlent Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Innlent Festust á hvolfi í hálftíma Erlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Innlent Fleiri fréttir Katrín kemur fram í fyrsta sinn frá krabbameinsgreiningu Festust á hvolfi í hálftíma Krefst landsvæðis og að Úkraína dragi NATO-umsóknina til baka Vara við TikTok-æði eftir handtöku tveggja unglinga Samþykktu fimmtíu milljarða dala aðstoð til Úkraínu Lést eftir að hafa fengið rafstraum í heitum potti Óeirðaástand í Buenos Aires vegna aðgerðarpakka Milei Lokuðu ferðamannastöðum og skólum vegna mikils hita Gamall handritsbútur reyndist úr guðspjalli um æsku Krists Aðeins fjórðungur Breta vill vera utan ESB Reyna að mynda bandalög fyrir skyndikosningar í Frakklandi Óvíst með afdrif vopnahléstillögunnar Frederiksen enn ekki með sjálfri sér eftir árásina Íhuga að virða tímamótadóm að vettugi Biden virðir sakadóminn yfir syni sínum Óhollar vörur drepa fjórðung Evrópubúa Stilla upp harðlínumönnum til að fylla skarð Raisi Flugfélagið býður hinum slösuðu minnst 1,4 milljónir í bætur Bananarisi ábyrgur fyrir morðum kólumbískrar dauðasveitar Umdeildur dómari vill trúræknari Bandaríki Varaforseti Malaví á meðal tíu látinna Hamas samþykkir vopnahléstillöguna Merki um stríðsglæpi beggja fylkinga þegar gíslar voru frelsaðir Skutu viðvörunarskotum að norðurkóreskum hermönnum Hægri öfl gætu eignast sinn fyrsta forsætisráðherra Tólf ára drengir sekir um morð á nítján ára gömlum manni Öryggisráðið styður friðartillögu Biden Flugvél varaforseta Malaví týnd Biden ber ekki vitni í eigin sakamáli Ekkja leiðtoga ISIS leysir frá skjóðunni Sjá meira