Makamál

Þriðjungur svarenda í opnu sambandi eða langar til að prófa

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Opið samband telst vera það þegar leyfilegt er að sænga hjá öðrum en makanum.
Opið samband telst vera það þegar leyfilegt er að sænga hjá öðrum en makanum. Getty
Rúmlega tvö þúsund manns tóku þátt í könnun Makamála í síðustu viku þar sem spurt var hvort fólk sé í opnu sambandi. 

Þriðjungur þátttakenda sagðist annað hvort vera í opnu sambandi eða hafa áhuga á því að prófa það fyrirkomulag.

En hér má sjá niðurstöðurnar: 

Já - 11%

Nei, en langar að prófa - 19%

Nei, en makann langar að prófa - 2%

Kemur ekki til greina - 68%

Makamál vinna nú að ítarlegri grein um opin sambönd og fjölsambönd og óska eftir viðmælendum sem hafa reynslu úr þessum heimi og vilja deila henni.

Hægt er að hlusta á umræðu um niðurstöðurnar og kynningu á næstu spurningu vikunnar hér að neðan: 


Tengdar fréttir

Spurning vikunnar: Hefur þú upplifað framhjáhald?

Þeir sem hafa upplifað framhjáhald eru flestir sammála um að það er eitt það erfiðasta sem fólk tekst á við í sambandi. Aðilinn sem heldur framhjá burðast yfirleitt með mikla skömm og samviskubit meðan hinn þarf að gera upp við sig hvort að hann er tilbúinn til að reyna að treysta aftur.

Sönn íslensk makamál: Þegar ég fór með sjálfa mig út í ruslið

Hvenær veit maður hvort að hinn aðilinn sé að leita eftir einhverju alvarlegu eða bara leika sér? Þegar ég fór inn á stefnumótamarkaðinn, algjörlega blaut á bak við eyrun eftir að hafa eytt öllum fullorðinsárum mínum í sambandi, þá komst ég að því að þetta var aðeins flóknari leikur en ég hafði gert mér grein fyrir.

Bone-orðin 10: Gígja Dögg er veik fyrir ilmandi iðnaðarmönnum

Gígja Dögg Einarsdóttir er 39 ára ljósmyndari og búfræðingur. Hún er einna þekktust fyrir hestamyndirnar sínar sem hún hefur verið að selja bæði til HM og Urban Outfitters. Makamál fengu að heyra hver 10 Bone-orðin hennar Gígju eru.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×