Selji sig niður fyrir þriðjungshlut Kristinn Ingi Jónsson skrifar 29. maí 2019 05:00 Kaupþing og Taconic eiga samanlagt 36 prósent í Arion. Fréttablaðið/Eyþór
Fjármálaeftirlitið hefur skyldað Kaupskil, dótturfélag Kaupþings, og bandaríska vogunarsjóðinn Taconic Capital til þess að minnka samanlagðan eignarhlut sinn í Arion banka niður fyrir 33 prósent fyrir 16. september næstkomandi. Þetta kemur fram í nýbirtum ársreikningi Kaupskila. Kaupskil og Taconic fara nú með samanlagt 36 prósenta hlut í Arion banka en til samanburðar var eignarhlutur félaganna tæplega 43 prósent í lok síðasta árs. FME lítur svo á að Kaupskil og Taconic séu í samstarfi í skilningi laga um fjármálafyrirtæki – vogunarsjóðurinn er stærsti hluthafi Kaupþings – og hefur því takmarkað heildaratkvæðisrétt félaganna tveggja við 33 prósenta hlut. Kaupþing, sem er stærsti hluthafi Arion banka, gekk í síðasta mánuði frá sölu á um fimmtán prósenta hlut í bankanum og heldur nú á fimmtungshlut í honum. Þar af seldi félagið tæplega fimm prósenta hlut til Taconic fyrir um 6,5 milljarða en vogunarsjóðurinn er í kjölfar kaupanna næst stærsti hluthafi bankans með sextán prósenta hlut. - kij Taconic Capital kom fyrst inn í hluthafahóp Arion banka í mars árið 2017 og var síðar sama ár metinn hæfur af Fjármálaeftirlitinu til þess að fara með virkan eignarhlut í bankanum sem nemur allt að 33 prósentum.
Birtist í Fréttablaðinu Íslenskir bankar Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Sjá meira