Justin Bieber er eðla Sif Sigmarsdóttir skrifar 4. maí 2019 08:45 Hvað gerist þegar sannleikurinn dettur úr tísku? Neyðarástand ríkir nú í nokkrum hverfum New York-borgar vegna mislingafaraldurs. Ástæðan: Tuttugu ára gömul samsæriskenning um tengsl bólusetningar gegn mislingum og einhverfu hjá börnum. Samsæriskenningar einskorðast ekki lengur við einhleypa, miðaldra karla sem búa í kjallaranum hjá mömmu sinni og bera álhatt á höfði. Samsæriskenningar renna nú saman við meginstrauminn, ósjaldan fyrir tilstuðlan óprúttinna, tækifærissinnaðra stjórnmálamanna sem svífast einskis í sókn sinni eftir áhrifum. Við Íslendingar höfum ekki farið varhluta af þessari alþjóðlegu þróun. Nú um stundir tryggja þingmenn Miðflokksins að nýjustu straumar og stefnur stjórnmálanna nái hingað til lands er þeir smíða eina villtustu samsæriskenningu Íslandssögunnar um konu sem gerð var út af dularfullum útsendara og, dulbúin eins og túristi, tók upp soratal kjörinna fulltrúa þjóðarinnar sem sátu í sakleysi sínu að sumbli á bar. Af því tilefni fylgja hér á eftir fimm heitustu samsæriskenningar dagsins sem sýna með hverjum Miðflokkurinn kýs að eiga aðferðafræðilega samleið: 1) Donald Trump hefur lengi haldið því fram að forveri hans í embætti forseta Bandaríkjanna, Barack Obama, hafi ekki fæðst í Bandaríkjunum heldur í Kenía og að hann hafi falsað fæðingarvottorð sitt. Það er þó ekki fjarstæðukenndasta kenning um Obama sem gengur nú fjöllum hærra. Að sögn eiga Obama og eiginkona hans, Michelle, að hafa reiðst svo mikið þegar leikkonan Joan Rivers sagði brandara um að Michelle væri karlmaður í kvenmannsfötum að þau létu ráða hana af dögum. 2) Einu sinni hélt mannkynið að jörðin væri flöt. Sú hugmynd gengur nú í endurnýjun lífdaga. Heilu stöðvarnar á efnisveitunni YouTube eru helgaðar málefninu, heilu hlaðvarps-seríurnar og heimasíðurnar. Árið 2017 var fyrsta „Jörðin er flöt“ ráðstefnan haldin í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum en hana sóttu meira en fimm hundruð manns. Enn fleiri mættu árið 2018. Skráning er hafin fyrir ráðstefnuna 2019 sem fer fram í nóvember í Dallas, Texas. 3) Eðlisfræðingurinn Stephen Hawking lést fyrir rétt rúmu ári. Eða hvað? Hópur fólks trúir því að hinn eiginlegi Stephen Hawking hafi látist árið 1985. Vegna vinsælda Hawkings hafi NASA hins vegar ráðið mann til að þykjast vera eðlisfræðingurinn sem geimferðastofnunin notaði svo sem málpípu fyrir „meint“ vísindi sín. 4) David Icke var vel liðinn sjónvarpsþáttastjórnandi hjá BBC og fyrrverandi atvinnumaður í fótbolta. Árið 1991 mætti hann í viðtal í Breska ríkissjónvarpið þar sem hann hann greindi áhorfendum frá því að veröldin er full af eðlum í mannslíki með ill áform. Barack Obama er eðla. Mick Jagger er augljóslega eðla. Elísabet Englandsdrottning er eðla. Viðtalið markaði endalok ferils Ickes sem fjölmiðlamanns. Það markaði hins vegar upphaf ferils hans sem eins fremsta samsæriskenningasmiðs heims. 5) Könnun sem gerð var í Bandaríkjunum leiddi í ljós að tólf milljónir Bandaríkjamanna trúa því að slíkar jakkafataklæddar eðlur stýri heiminum. Stöðugt bætast nýjar í hópinn en nýverið fréttist af því að Justin Bieber er eðla. Eðlu-kenningin er þó langt frá því að vera sú vinsælasta. Sextíu og sex milljónir Bandaríkjamanna trúa því að geimverur hafi lent í Roswell í Nýja-Mexíkó. Tuttugu og tvær milljónir trúa því að bandarísk stjórnvöld hafi sviðsett tungllendinguna. Hundrað og sextíu milljónir trúa á samsæri í tengslum við morðið á John F. Kennedy. Donald Trump var einn þeirra sem héldu á lofti ósönnum staðhæfingum um bólusetningar. Í síðustu viku skipti hann hins vegar um skoðun. Hann sá skaðann sem hlotist getur af vitleysu og hvatti fólk til að láta umsvifalaust bólusetja börn sín. Miðflokkurinn virðist hins vegar ekki ætla að sjá að sér og heldur áfram að djöflast á heilsulitlum öryrkja með aðstoð ofur kappsfullra lögmanna, okkur hinum sem víti til varnaðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Sif Sigmarsdóttir Mest lesið Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Skoðun Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar