Viðskipti erlent

Selja illa fengna snekkju Jho Low með helmingsafslætti

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Equanimity hefur legið við bryggju í Kúala Lúmpúr undanfarna mánuði, með gríðarlegum kostnaði fyrir malasíska skattgreiðendur.
Equanimity hefur legið við bryggju í Kúala Lúmpúr undanfarna mánuði, með gríðarlegum kostnaði fyrir malasíska skattgreiðendur. Vísir/getty
Malasísk stjórnvöld hafa fallist á að selja ofursnekkju, sem talið er að hafi verið keypt fyrir opinbert fé, fyrir 126 milljónir dala, 15 milljarða íslenskra króna. Salan á snekkjunni er liður í átaki þarlendra stjórnvalda til að vinda ofan 1MDB-hneykslinu svokallaða sem hefur teygt anga sína víða - t.a.m. til Hollywood.

Hneykslið dregur nafn sitt af samnefndum sjóði, 1MDB, sem stendur fyrir 1Malaysia Development Berhad. Þáverandi forsætisráðherra Malasíu, Najib Razak, stofnaði sjóðinn árið 2009 með það að markmiði að laða að erlenda fjárfestingu til Malasíu og stuðla að uppbyggingu landsins.

Fjármunir úr sjóðnum virðast þó hafa verið nýttir í allt annað en að styrkja innviði Malasíu. Talið er að milljörðum dala hafi verið stolið úr sjóðnum, sem var síðan notaður til að stunda peningaþvætti í gegnum dótturfyrirtæki.

Tyrkenskt gufubað og þyrlupalli

Réttað var yfir Razak í dag, sem alls sætir 42 ákærum fyrir aðild sína að málinu. Hann neitaði sök í þeim sjö ákæruliðum sem teknir voru fyrir í Kúala Lúmpúr í dag.

Bæði malasísk og bandarísk stjórnvöld eru þó fullviss um sekt Razak. Hann og kónar hans hafi notað sjóðinn til að fjármagna lúxuslífstíl sinn; keypt einkaþotu, Picasso-málverk, fjöldann allan af fasteignum sem og fyrrnefnda ofursnekkju, sem ber heitið Equanimity.

Snekkjan er engin smásmíði; hún er rúmur 91 metri að lengd, með heitum potti, 20 metra langri sundlaug, þyrlupalli, snyrtistofu, líkamsræktarstöð, kvikmyndasal og tyrknesku gufubaði - svo eitthvað sé nefnt.

Jho Low með góðvini sínum Leonardo DiCaprio. Sá malasíski fjármagnaði ekki aðeins eina af stórmyndum leikarans, The Wolf of Wall Street, heldur á hann einnig að hafa gefið DiCaprio rándýrt Picasso-málverk.Getty/Bertrand Rindoff Petroff
Einn af samverkamönnum fyrrnefnds Razak var kaupsýslumaðurinn Low Taek Jho, betur þekktur sem Jho Low. Talið er að það hafi verið hann sem festi kaup á Equanimity fyrir 250 milljónir dala árið 2014. Malasískir miðlar segja söluverðið, fyrrnefndar 126 milljónir dala til spilavítaveldisins Genting Malaysia, því vera hálfgert rán.

Lagt var hald á snekkjuna við strendur Bali í Indónesíu í fyrra og var hún framseld til malasískra yfirvalda. Snekkjan hefur legið við bryggju í Kúala Lúmpúr frá því í ágúst í umsjá þarlendra stjórnvalda.

Sogar til sín skattfé

Heimildarmaður The Star segir að upphaflega hafi staðið til að selja snekkjuna fyrir 130 milljónir dala hið minnsta, sem þó eru næstum helmingsafföll. Fjöldi tilboða hafi borist í snekkjuna en flest á bilinu 80 til 100 milljónir dala. Því hafi verið ákveðið að ganga að tilboði spilavítaveldisins.

Malasísk stjórnvöld hafi auk þess verið í hálfgerðri tímaþröng við að selja snekkjuna. Gríðarlegur viðhaldskostnaður hafi „sligað skattgreiðendur,“ sem ætlað er að hafi greitt 3,5 milljónir dala í hafnargjöld og fyrir hvers kyns lagfæringar á ofursnekkjunni síðastliðna 8 mánuði.

Þrátt fyrir að söluverðið hafi valdið malasískum stjórnvöldum vonbrigðum er þetta engu að síður hæsta upphæð sem þeim hefur tekist að skrapa saman á einu bretti í tengslum við uppgjörið á 1MDB. Rannsakendur eiga þó ennþá nokkuð langt í land við að endurheimta alla þá 4,5 milljarða dala sem talið er að hafi verið stolið úr sjóðnum.

Nánar má fræðast um 1MDB, Razak og Jho Low í úttekt Vísis: Gler­píanó, týndir milljarðar og Hollywood-stjörnur í einu stærsta fjár­svika­máli sögunnar.


Tengdar fréttir

Malasía fer í hart við Goldman Sachs

Fjárfestingarbankinn Goldman Sachs verst ásökunum um að hafa tekið þátt í spillingu er varðar malasískan fjárfestingarsjóð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×