Lífið

Sjáðu flugtak Boeing 777 í 4K háskerpu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Vélarnar geta tekið tæplega fjögur hundruð farþega.
Vélarnar geta tekið tæplega fjögur hundruð farþega.
Boeing 777 tekur vanalega 314-396 farþega og er um breiðþotu að ræða. Á YouTube-síðu Guillaume Laffon má sjá flugtak vélarinnar frá Charles de Gaulle-vellinum í París.

Myndbandið er í fullri 4K upplausn og er það tekið upp inni í flugstjórnarklefanum.

Þar er farið yfir allt ferlið frá a-ö og hvað gerist í raun og veru inni í klefanum í flugtaki en vélar Boeing af tegundinn 737 MAX hafa verið mikið í fjölmiðlum um heim allan síðustu vikur, en talið er að rekja megi tvö flugslys til hönnunargalla í vélunum  og hafa þær verið kyrrsettar.

Hér að neðan má sjá flugtak Boeing 777 frá París.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×