Skúli þarf fimm milljarða til að halda flugi Jóhann Óli Eiðsson skrifar 25. mars 2019 06:00 Forsvarsmenn WOW leggja til fækkun í vélaflota og að skuldum verði breytt í hlutafé svo hægt sé að halda rekstri áfram. fbl/ernir
Fundað var víða um höfuðborgina í gærkvöld vegna stöðu WOW air eftir að viðræðum félagsins við Icelandair var slitið um miðjan dag. Skúli Mogensen, eigandi félagsins, rær nú lífróður til að afstýra brotlendingu þess. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins vinnur Arctica Finance að því að safna 42 milljónum dollara, andvirði rúmlega 4,3 milljarða króna, til að bjarga flugfélaginu frá þroti. Hafa verður hraðar hendur við það verk. Félagið skuldar fyrir um 200 milljónir dollara – skuldabréfaeigendum, Arion banka, ISAIVA ohf. og ýmsum öðrum viðskiptavinum – en sú upphæð samsvarar um 24 milljörðum íslenskra króna. Af þeirri upphæð eru um tveir milljarðar króna komnir til vegna skuldar félagsins við ISAVIA. Hefur félagið skuldbundið sig til að hafa ávallt eina vél flota síns á Keflavíkurflugvelli til tryggingar greiðslu skuldarinnar. Sú hugmynd hefur verið viðruð, af forsvarsfólki WOW, að ISAVIA gefi eftir hluta skuldarinnar.Sjá einnig: „Ég er mjög ánægður með stöðuna,“ segir Skúli Þátttakendur í skuldabréfaútboði WOW air, sem léðu flugfélaginu um 7,9 milljarða króna síðasta haust, sem og aðrir kröfuhafar fyrirtækisins funduðu um helgina. Fram kom í tilkynningu frá WOW í gær að fulltrúar félagsins hefðu tekið þátt í þeim fundum en efni þeirra var að reyna að ná samkomulagi um fjárhagslega endurskipulagningu þess. Í tilkynningu WOW kom enn fremur fram að vonir standi til þess að hluta núverandi skulda yrði breytt í hlutafé og að fjármagn verði tryggt þar til félagið nái stöðugleika á ný. Hagræðingarhugmyndir forsvarsmanna fyrirtækisins lutu að því að fækka í flugflotanum, úr ellefu vélum í sjö. Heimildir Fréttablaðsins herma að tillögur Skúla hafi ekki fallið í frjóan jarðveg.Þá sendi Skúli Mogensen starfsmönnum sínum stutt bréf í gærkvöldi. Þar þakkaði hann starfsfólki fyrir mikinn stuðning sem það hefur sýnt. Fjöldi starfsmanna hafi boðist til þess að leggja hluta launa sinna upp í hlutafé í félaginu. Vonir standi til þess að unnt verði að verða við því. Að öðru leyti gæti hann ekkert sagt á þessu stigi umfram það sem fram komi í tilkynningunni. Tilkynnt var um viðræðuslit Icelandair og WOW á sjötta tímanum í gær. Umræddar viðræður voru stuttar en þær hófust á föstudag eftir að upp úr flosnaði milli WOW og Indigo Partners. Um síðustu helgi viðruðu forsvarsmenn WOW hugmyndir við stjórnvöld um ríkisábyrgð á lánalínu til félagsins frá Arion banka. „Í stuttu máli er fjárhagsstaðan og reksturinn með þeim hætti að við sáum ekki ástæðu til að halda áfram,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, um viðræðuslitin. „Við vorum að horfa á þetta til lengri tíma en ekki til þess að leysa skammtímamál. Síðan þegar við fórum að skoða málið og allar sviðsmyndir þá ákváðum við að ganga frá þessum viðræðum.“Fulltrúar WOW air og kröfuhafar félagsins voru ekki einu aðilarnir sem funduðu í gær vegna stöðunnar. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, og samgönguráðherrann Sigurður Ingi Jóhannsson komu einnig saman til að ræða stöðuna. Heimildir Fréttablaðsins herma að Matt Ridley, ráðgjafi sem starfaði áður hjá fjárfestingarbankanum JP Morgan og einn helsti ráðgjafi Íslands í kjölfar hruns bankanna, hafi setið fundinn. Ekki fengust svör um hvað fór fram á fundinum. Sigurður Ingi vildi ekki ræða við blaðið um stöðuna en sagði í skriflegu svari að óvissa væri um stöðuna í flugmálum. Þá herma heimildir Fréttablaðsins að fulltrúar WOW hafi fundað með Samgöngustofu í gær en stjórnvaldið er útgefandi flugrekstrarleyfis félagsins. Eitt af skilyrðum þess leyfis er að flugrekandi hafi fjárhagslegt bolmagn til að halda rekstri áfram. Samgöngustofa hefur fylgst grannt með fjárhagsstöðu félagsins frá síðasta hausti en samkvæmt heimildum blaðsins var meðal annars endurskoðandi frá stofnuninni með starfsstöð á skrifstofu WOW um skeið. Sagt var frá því í helgarblaði Fréttablaðsins að komi til þess að WOW air hverfi af flugmarkaði gæti það leitt til þess að landsframleiðsla dragist saman um allt að tæpum þremur prósentum. Var það niðurstaða skýrslu sem unnin var af ráðgjafarfyrirtækinu Reykjavík Economics fyrir félagið. Í skýrslunni kemur einnig fram að brotthvarfið hefði í för með sér veikingu krónunnar og að þúsundir starfa myndu tapast.
Birtist í Fréttablaðinu Fréttir af flugi WOW Air Tengdar fréttir „Ég er mjög ánægður með stöðuna,“ segir Skúli Skúli Mogensen, forstjóri og eini eigandi WOW air, sendi starfsmönnum sínum bréf í kvöld þar sem hann þakkaði fyrir skilaboð sem starfsfólk hefði sent honum síðustu daga. 24. mars 2019 22:15 Treystu sér ekki til að halda áfram viðræðum vegna fjárhagsstöðu WOW Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair. 24. mars 2019 17:35 Hræddur um að Indigo hafi fyrst og fremst ætlað sér að „þefa“ af WOW air Jón Karl Ólafsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Isavia og fyrrverandi forstjóri Icelandair, er ekki viss um að Indigo Partners hafi með viðræðum við WOW air ætlað sér að kaupa flugfélagið. 24. mars 2019 12:00 Mest lesið Daði Már kennir olíufélögunum um Viðskipti innlent Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Miklar hækkanir í lágvöruverðsverslunum í byrjun árs Neytendur Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Viðskipti innlent Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Viðskipti innlent Ísland eins og stefnumótasíða í sjávarútvegi Atvinnulíf Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Viðskipti innlent Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Viðskipti innlent Fleiri fréttir Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Sjá meira
„Ég er mjög ánægður með stöðuna,“ segir Skúli Skúli Mogensen, forstjóri og eini eigandi WOW air, sendi starfsmönnum sínum bréf í kvöld þar sem hann þakkaði fyrir skilaboð sem starfsfólk hefði sent honum síðustu daga. 24. mars 2019 22:15
Treystu sér ekki til að halda áfram viðræðum vegna fjárhagsstöðu WOW Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair. 24. mars 2019 17:35
Hræddur um að Indigo hafi fyrst og fremst ætlað sér að „þefa“ af WOW air Jón Karl Ólafsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Isavia og fyrrverandi forstjóri Icelandair, er ekki viss um að Indigo Partners hafi með viðræðum við WOW air ætlað sér að kaupa flugfélagið. 24. mars 2019 12:00