Viðskipti innlent

Áralangur taprekstur af loðdýrarækt

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Þrettán loðdýrabú eru nú starfrækt á Íslandi. Þau voru flest um 240 talsins á níunda áratug síðustu aldar.
Þrettán loðdýrabú eru nú starfrækt á Íslandi. Þau voru flest um 240 talsins á níunda áratug síðustu aldar. Vísir/Magnús Hlynur
Viðsnúningur varð í rekstri loðdýrabúa landsins árið 2014. Ef marka má úttekt Hagstofunnnar voru að jafnaði um 40 loðdýrabú í rekstri á árunum 2008 til 2014 og voru sameiginlegar rekstrarniðurstöður þeirra réttu megin við núllið á þessu tímabili.

Þau hafa hins vegar verið rekin með tapi á árunum 2014 til 2017 og tap þeirra nam um 150 milljónum króna í lok tímabilsins. 

„Tekjur þeirra námu 726 milljónum króna árið 2017 og 86% tekna mátti rekja til sölu loðdýraafurða. Gjöld námu 873 milljónum króna það ár og skiptust þau þannig: vöru- og hráefnisnotkun 376 m.kr. (43,1%), laun og launatengd gjöld 208 m.kr. (23,9%), annar rekstrarkostnaður 202 m.kr. (23,2%) og fyrningar 87 m.kr. (9,9%),“ eins og segir í útlistun Hagstofunnar.

hagstofan
Samhliða taprekstrinum fækkaði loðdýrabúum hratt. Þau voru um 30 talsins árið 2017 en hefur fækkað um rúman helming síðan. Greint var frá því í desember síðastliðnum að þau væru nú 13 talsins. Til samanburðar má nefna að á hátindi loðdýraræktar á Íslandi, á níunda áratug síðustu aldar, var fjöldi búa um 240.

Þessi þróun var rakin til lægra verðs á minnkaskinnum í Bændablaðinu undir lok síðasta árs. Væri nú svo komið að um helmingi minna fengist fyrir hvert skinn en það kostar að framleiða það. Veiking krónunnar hafi þó hlaupið undir bagga með loðdýrabændum, sem engu að síður telja sig þurfa að njóta ríkisaðstoðar ef loðdýrarækt á ekki að leggjast af í landinu.

Magnús Hlynur Hreiðarsson ræddi við loðdýrabónda i nóvember síðastliðnum, viðtal hans má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×