Afkoma Origo á síðasta ári sú besta í sögu félagsins Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 30. janúar 2019 18:04 Finnur Oddsson er forstjóri Origo
Origo hf. kynnti í dag uppgjör fjórða ársfjórðungs og heildaruppgjör fyrir 2018. Heildarhagnaður fyrirtækisins á síðasta ári nam 5,4 milljörðum. Afkoma síðasta árs er sú besta í sögu félagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu Origo til Kauphallar en þar segir að sala á fjórða ársfjórðungi hafi numið 4,4 milljörðum króna og var hún 13,1 prósenti hærri en sama tímabil í fyrra. Heildarhagnaður á fjórða ársfjórðungi árið 2018 var 5,2 milljarðar króna samanborið við 167 milljónir króna á sama tímabili árið 2017. Í tilkynningunni segir að heildarhagnaður félagsins á síðasta ári hafi aukist mikið en hann var 5,4 milljarðar samanborðið við 433 milljónir króna á árinu 2017. „Afar gott ár er að baki og Origo hefur ekki áður verið í jafn sterkri stöðu til að sækja fram eða takast á við óvænt áföll ef þau eiga sér stað. Í því sambandi, þá eru augljóslega blikur á lofti á vinnumarkaði en sameiginlegt keppikefli allra hlutaðeigandi er að varðveita stöðugleika, halda niðri verðbólgu og verja annars vegar kaupmáttaraukningu undanfarinna ára og um leið samkeppnisfærni íslensks atvinnulífs. Við höfum trú á að það takist,“ er haft eftir Finni Oddssyni, forstjóra félagsins.Tikynningu Origo til Kauphallar má lesa hér.
Viðskipti Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira