Innlent

Laddi og Páll Óskar í hópi nýrra fálka­orðu­hafa

Atli Ísleifsson skrifar
Forseti Íslands sæmir íslenska ríkisborgara fálkaorðunni tvisvar á ári, 1. janúar og 17. júní.
Forseti Íslands sæmir íslenska ríkisborgara fálkaorðunni tvisvar á ári, 1. janúar og 17. júní. vísir/egill
Guðni Th. Jóhannesson forseti sæmdi í dag fjórtán Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Forseti Íslands sæmir íslenska ríkisborgara fálkaorðunni tvisvar á ári, 1. janúar og 17. júní.

Þeir sem sæmdir voru orðunni í dag voru:

1. Agnes Anna Sigurðardóttir framkvæmdastjóri, Dalvík, riddarakross fyrir framlag til þróunar atvinnulífs í heimabyggð 

2. Árni Magnússon fyrrverandi skólastjóri, Garðabæ, riddarakross fyrir störf á vettvangi félags- og skólamála 

3. Björg Thorarensen prófessor, Reykjavík, riddarakross fyrir kennslu og rannsóknir á sviði lögfræði 

4. Georg Lárusson forstjóri, Kópavogi, riddarakross fyrir störf í opinbera þágu 

5. Guðríður Ólafs Ólafíudóttir fyrrverandi formaður Sjálfsbjargar, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til velferðar- og mannúðarmála 

6. Guðrún Sveinbjarnardóttir fornleifafræðingur, Bretlandi, riddarakross fyrir framlag til fornleifarannsókna 

7. Haraldur Briem fyrrverandi sóttvarnarlæknir, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi heilsuverndar og lýðheilsu 

8. Kristín Aðalsteinsdóttir fyrrverandi prófessor, Akureyri, riddarakross fyrir störf á vettvangi menntavísinda 

9. Margrét Frímannsdóttir fyrrverandi alþingismaður, Kópavogi, riddarakross fyrir störf í opinbera þágu 

10. Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar tónlistar og jafnréttismála 

11. Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður, Seltjarnarnesi, riddarakross fyrir framlag til mannréttindamála og réttindabaráttu 

12. Tómas Knútsson vélvirkjameistari og stofnandi Bláa hersins, Sandgerði, riddarakross fyrir framlag á vettvangi umhverfisverndar 

13. Valdís Óskarsdóttir kvikmyndagerðarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar og alþjóðlegrar kvikmyndagerðar 

14. Þórhallur Sigurðsson leikari og tónlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar menningar

Í orðunefnd eiga nú sæti Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra sem er formaður nefndarinnar, Ellert B. Schram, fyrrverandi alþingismaður og fyrrverandi forseti ÍSÍ, Guðrún Nordal, forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Jón Egill Egilsson, fyrrverandi sendiherra, Svanfríður Jónasdóttir, fyrrverandi bæjarstjóri og fyrrverandi alþingismaður og Örnólfur Thorsson orðuritari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×