Öll fjármögnun á einum stað - gengið frá viðskiptum á öruggan hátt Frágangur.is kynnir 2. janúar 2019 14:15 Haraldur F. Arnarsson, framkvæmdastjóri Frágangs.is og Netbifreiðasölunnar. Vilhelm
Frágangur.is er viðskiptamiðlun sem sérhæfir sig í greiðslulausnum og lánaumsýslu fyrir einstaklinga og fyrirtæki, stór sem smá og er í samstarfi við öll helstu fjármögnunarfyrirtæki. Frágangur.is er í eigu Netbifreiðasölunnar. „Markmið okkar er að sameina kaupanda og seljanda á öruggan og einfaldan hátt á vettvangi þar sem frágangur á fjármögnun og greiðsluleiðum fer fram á einum stað,“ útskýrir Haraldur F. Arnarsson, framkvæmdastjóri Frágangs.is og Netbifreiðasölunnar. Hann segir mikla þörf hafa verið á þjónustu sem þessari til að auðvelda fólki að ganga frá kaupum sem til dæmis eru gerð í gegnum samfélagsmiðla.Löggiltur aðili þarf að ganga frá kaupum,,Síðustu misseri hefur mikið borið á því að fólk noti samskiptamiðla til að selja bíla, mótorhjól, hjólhýsi og ýmsa aðra hluti. Þegar kaupandinn þarf að fjármagna kaupin er það krafa fjármögnunaraðila að kaupin gangi í gegnum löggiltan aðila sem sér um fráganginn. Líkt og flestar bílasölur tökum við að okkur hefðbundinn frágang á fjármögnun við bílakaup en einnig á öðrum hlutum sem fólk óskar eftir að fjármagna með þeim fjármögnunarleiðum sem eru í boði líkt og pei, netgiro, raðgreiðslum og fleiri leiðum. Eftirspurnin eftir þeirri þjónustu hefur aukist mikið upp á síðkastið,“ segir Haraldur.Einfalt ferliFerlið er einfalt að sögn Haraldar, umsókn um fjármögnun er gerð á staðnum og getur fengið afgreiðslu hjá viðkomandi fjármögnunarfyrirtæki samdægurs. Afgreiðslutími umsóknar fer eftir eðli umsóknar og þeim afgreiðslutíma sem fjármögnunaraðilar gefa sér hverju sinni. „Við hvetjum fólk að kíkja í heimsókn til okkar og við hjálpum þeim að finna fjármögnun sem hentar." Frágangur.is er staðsett í sama húsi og Netbifreiðasalan að Hlíðasmára 13.Netbifreiðasalan„Hjá Netbifreiðasölunni leggjum við megináherslu á að nota netið og miðlana og höldum úti öflugri vefsíðu og facebook-síðu. Framsetning skiptir okkur máli og við leggjum mikið upp úr gæðum ljósmynda og ýtarlegum upplýsingum um bílana. Þá göngum við einnig skrefinu lengra en margir aðrir og búum til myndbönd um valda bíla," segir Haraldur. Nánari upplýsingar er að finna á fragangur.is og á nbs.isÞessi kynning er unnin í samstarfi við Frágang.is og Netbifreiðasöluna.
Mest lesið Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viðskipti innlent Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Viðskipti innlent Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Samstarf Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Viðskipti innlent Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Neytendur „Ég var skíthrædd að senda þessa tölvupósta“ Atvinnulíf Krónísk óstundvísi: Skýringar og góð ráð Atvinnulíf Neytendur kunna að meta Landlaxinn og Landbleikjuna Samstarf Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Viðskipti erlent Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Viðskipti erlent Fleiri fréttir Neytendur kunna að meta Landlaxinn og Landbleikjuna Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Tölum um neytendamál! Mættu tímanlega í pallaráðgjöf hjá BYKO Bíllinn leggur meðan ég fæ mér drykk - smart #3 reynsluakstur GreenCoat er umhverfisvænasta litaða stálklæðningin sem völ er á Nú er hægt að elta góða veðrið um landið með kortavef Já.is Einblína á trausta ávöxtun til langs tíma Fjölbreytt vöruúrval og ein bestu verð hérlendis Toyota sýnir úrvals fyrirtækjabíla á Verk og vit Nýr Toyota Yaris Hybrid frumsýndur á laugardag Leið eins og stjórnanda geimskips Hver verður iðnaðarmaður ársins 2024? Sjá meira