
Ritstjórnarvald ríkisins
Úr því að Íslandsbanki er búinn að taka af skarið gætu önnur ríkisfyrirtæki og stofnanir fylgt í kjölfarið. Samfélagsábyrgð er enda vaxandi partur í starfsemi þeirra og varla til sú stofnun sem hefur ekki sett sér samfélagsleg markmið. Taka mætti dæmi um embætti landlæknis. Ekki yrði keypt af fjölmiðli sem birtir efni sem gæti talist andstætt lýðheilsu, t.d. með auglýsingum sem hvettu til óholls mataræðis eða viðtölum þar sem ekki er fjallað um neyslu áfengis, tóbaks eða orkudrykkja með nægilega gagnrýnum hætti.
Fleiri stofnanir myndu auðvitað vilja sýna samfélagsábyrgð í verki. Umhverfisstofnun kaupir ekki af fjölmiðli sem birtir greinar þar sem efast er um gagnsemi eða nauðsyn aðgerða gegn loftslagsvá, né af miðlum sem ekki eru kolefnishlutlausir. Byggðastofnun ekki af miðlum sem sýna ekki nægilegt jafnvægi í umfjöllun um mál sem varða hagsmuni landsbyggðarinnar. Öll ábyrg ríkisfyrirtæki og stofnanir fylgjast með fjölmiðlum og halda úti lista þeirra sem sýna ekki samfélagsábyrgð í verki. Það væri jafnvel tilvalið að fjölmiðlanefnd fengi það hlutverk að fylgjast með og flagga þeim fjölmiðlum sem brjóta gegn skilmálum hverrar og einnar stofnunar.
Þegar allir hafa sýnt samfélagsábyrgð sína í verki er hlutverk fréttamanna fyrst og fremst að birta fréttatilkynningar frá upplýsingafulltrúum ríkisfyrirtækja og -stofnana. Jafnframt að veita forstöðumönnum þeirra viðtöl um samfélagsleg markmið sín. Hlutverk ritstjórna væri þá aðallega að meta og leiðbeina um hvað teldist birtingarhæft í auglýsingum einkafyrirtækja, skera úr um hvað skuli gert ef fréttatilkynning eins stangast á við samfélagsmarkmið annars og passa upp á að viðmælendur flytji ekki mál sem væri andstætt samfélagsábyrgð. Með þessu má tryggja að öllum samfélagslegum markmiðum verði náð miklu hraðar og betur en ella.
Höfundur er fyrrverandi blaðamaður.
Tengdar fréttir

Segja eitt en gera annað
Þegar loforð um betri og bættan heim heyrast úr öllum hornum þar sem flestir eru að reyna að breyta hegðun sinni þá er ekki annað hægt en að fyllast örlítilli von um að hlutirnir fari kannski ekki á versta veg þrátt fyrir öra hlýnun jarðar.

Útspil Íslandsbanka kemur fjármálaráðherra spánskt fyrir sjónir
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra veltir fyrir sér hvar Íslandsbanki ætli að draga mörkin þegar komi að jafnréttismálum. Bankinn, sem er í eigu ríkisins, ætlar að beina viðskiptum sínum frá karlægum fyrirtækjum og hætta að kaupa auglýsingar hjá fjölmiðlum "sem bjóða upp á afgerandi kynjahalla.“

Íslandsbanki setur viðskiptabann á karllæga fjölmiðla
Búið að flagga tiltekna fjölmiðla.
Skoðun

Dýravernd - frumbyggjahættir
Árni Stefán Árnason skrifar

Stórstraumsfjara mæld - HMS ráðþrota
Magnús Guðmundsson skrifar

Sýnum fordómum ekki umburðarlyndi
Snorri Sturluson skrifar

Landbúnaður á tímamótum – Við þurfum nýja stefnu
Guðjón Sigurbjartsson skrifar

Sjómenn til hamingju!
Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar

Leyfum mennskunni að sigra
Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar

Fjölskyldan fyrst
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Hvað er markaðsverð á fiski?
Sverrir Haraldsson skrifar

Tími til kerfisbundinna breytinga í samfélagstúlkun – ákall til stjórnvalda
Anna Karen Svövudóttir skrifar

Fæðing Ísraels - Líkum misþyrmt
BIrgir Dýrfjörð skrifar

Við eigum allt. Af hverju finnst okkur samt vanta eitthvað?
Valentina Klaas skrifar

Um spretthóp og lestrarkennslu. Hvatning til mennta- og barnamálaráðherra um faglega starfshætti
Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar

Tíðaheilbrigði er lykilatriði í jafnrétti kynjanna
Berit Mueller skrifar

Þjóðarmorð – frá orðfræðilegu sjónarmiði
Eiríkur Rögnvaldsson skrifar

Borgarlína, barnleysi og bíllaus lífstíll – hentar það Kópavogi?
Einar Jóhannes Guðnason skrifar

Þakkir til starfsfólk Janusar
Sigrún Ósk Bergmann skrifar

Mun gervigreindin senda konur heim?
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Frá, frá, frá. Fúsa liggur á
Eiríkur Hjálmarsson skrifar

Nokkur orð um stöðuna
Dögg Þrastardóttir skrifar

Kynbundinn munur í tekjum á efri árum
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar

#blessmeta – þriðja grein
Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar

Hvernig tryggir þú stærstu fjárfestingu lífins?
Berglind Halla Elíasdóttir skrifar

Ritunarramminn - verkfæri fyrir kennara!
Katrín Ósk Þráinsdóttir skrifar

Feluleikur Þorgerðar Katrínar
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Ráðalaus ráðherra
Högni Elfar Gylfason skrifar

Spólum til baka
Snævar Ingi Sveinsson skrifar

Sögulegur dómur Hæstaréttar – staðfestir sjálfstæði Alþingis
Erna Bjarnadóttir skrifar

Að vera fatlaður á Íslandi er full vinna
Birna Ösp Traustadóttir skrifar

Sæluríkið Ísland
Einar Helgason skrifar