Jól

Jóladagatal Vísis: Marteinn Mosdal tekur fyrir jólin

Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar
Marteinn Mosdal í skapi fyrir ríkisrekin jól.
Marteinn Mosdal í skapi fyrir ríkisrekin jól.

Upp er runninn 20. desember og aðeins fjórir dagar til jóla.

Vísir ætlar að gleðja lesendur sína með jóladagatali þar sem leitað verður í gullkistuna á sjónvarps- og útvarpsvefnum. Óhætt er að segja að þar sé hægt að gleyma sér við áhorf á gamalt og gott efni.

Tímavélin flytur okkur í þetta sinn 12 ár aftur í tímann, í innslag Marteins Mosdal í Íslandi í dag 12. desember 1997.

Laddi leikur Martein, sem er eins konar tákngervingur ríkisafskipta og afturhalds, með miklum tilþrifum, tilheyrandi ambögum og almennri vitleysu.

Hér að neðan má svo sjá innslag Marteins um Ríkislímonaði.








×