Vonbrigði að vera ekki valinn þegar á hólminn var komið Hörvar Ólafsson skrifar 28. júní 2018 11:00 Tryggvi Snær Hlinason er klár í að berjast fyrir sæti í NBA-deildinni. Vísir/Getty
Síðustu vikur hafa verði ansi viðburðaríkar hjá Tryggva Snæ Hlinasyni, landsliðsmanni í körfubolta, en hann hefur á þeim tíma ferðast mikið, æft með fjölmörgum afar frambærilegum körfuboltamönnum og tekið þátt í nýliðavali NBA. Þar var Tryggvi Snær ekki valinn, en þrátt fyrir að vera ánægður með allan þann lærdóm sem hann hefur dregið af ferlinu í kringum valið varð hann fyrir vonbrigðum með að vera ekki valinn. „Þetta var auðvitað fyrst og fremst mjög gaman. Það var bæði gagnlegt og skemmtilegt að sjá hvar maður stendur í þessum bransa. Að máta sig við leikmenn í svona háum gæðaflokki sem eru að spila svipaða stöðu og ég mun nýtast mér í framhaldinu. Þetta tók líka vel á, það var mikil keyrsla á þessu öllu saman, mikið um ferðalög og nokkur þeirra löng. Það rífur líka í þegar það er mikil óvissa um næstu verkefni og að vera alltaf á hraðferð. Ég var aldrei viss um það hvernig næsti sólarhringur yrði og fékk vanalega bara að vita samdægurs hvert ég væri að fara næst,“ sagði Tryggvi Snær sem æfði í æfingabúðum NBA-liða víðs vegar um Bandaríkin í aðdraganda valsins.Vísir/GettyFannst ég eiga alveg heima á þessu kalíberi „Mér fannst ég standa mig ágætlega og eiga alveg heima á þessu kalíberi. Það er mikil áhersla á leikstöðuna einn á móti einum og þar átti ég í nokkrum vandræðum. Það er gott að sjá hvaða vankanta ég hef og hvað ég get helst bætt mig á næstu misserum. Það er mikið einangrað í stöðu þar sem menn eiga að ráðast á körfuna og ég verð að leggja áherslu á að verða betri í þeim hluta leiksins. Þetta opnar augun og gefur manni viðmið um hvað þarf að laga. Ég fékk leiðbeiningar frá reynslumiklum og mjög færum þjálfurum sem ég get klárlega nýtt mér,“ sagði Tryggvi Snær aðspurður um hvernig hefði gengið á æfingum með þessum hæfileikaríku leikmönnum. „Flestir þjálfararnir voru jákvæðir í minn garð og þeir vita að ég hef líkamlega eiginleika sem geta nýst vel. Nú er bara að bæta líkamlegan styrk, tæknina og fínpússa minn leik. Ég tel mig eiga fullt erindi í þessa leikmenn og stefnan er að komast í NBA einn daginn. Það var vissulega stór stund að komast í valið að þessu sinni og mögnuð stund að vera viðstaddur valið. Það voru hins vegar vonbrigði að vera ekki valinn. Þegar maður er kominn svona nálægt þessu er leiðinlegt að komast ekki alla leið. Ég var hins vegar alveg viðbúinn því að þetta gæti farið svona að þessu sinni, en ég var svekktur að heyra ekki nafnið mitt,“ sagði Tryggvi Snær um upplifun sína af því að vera viðstaddur valið sem fram fór í Brooklyn í New York.Vísir/GettyÆtlar að fara í sumardeild NBA „Hugmyndin er að fylgja þessu eftir með að fara í sumardeild NBA eftir landsliðsverkefnið, taka svo stutt frí og æfa svo á fullu í Santa Barbara í Los Angeles við toppaðstæður. Svo er það bara undirbúningstímabil með Valencia þar á eftir. Ég er samningsbundinn Valencia á næstu leiktíð og býst ekki við öðru en að vera þar áfram. Hlutirnir eru hins vegar fljótir að breytast í körfuboltaheiminum svo maður veit aldrei. Mér líður hins vegar vel í Valencia og langar að vera þar allavega eitt keppnistímabil í viðbót,“ sagði Tryggvi Snær sem er staddur í Búlgaríu þessa stundina með liðsfélögum sínum í íslenska landsliðinu þar sem þeir eru að búa sig undir leik gegn heimamönnum í undankeppni HM 2019 sem leikinn verður á morgun. Ísland er í harðri baráttu um að komast áfram í milliriðla undankeppninnar, en þrjú af fjórum liðum í riðlakeppni forkeppninnar komast þangað. Ísland er sem stendur í öðru til þriðja sæti riðilsins með tvo vinninga, líkt og Finnland, sem eru næstu andstæðingar íslenska liðins í riðlakeppninni á eftir leiknum gegn Búlgaríu. Búlgaría nartar svo í hæla Íslands og Finnlands með einn sigur á botni riðilsins. Tékkland er hins vegar á toppi riðilsins með þrjá sigra. Tveir leikir eru eftir af riðlakeppninni og sigur á Búlgaríu tryggir sæti í milliriðlunum.Vísir/Getty
Körfubolti Mest lesið Mcllroy missti sigur úr greipum sér og DeChambeau vann opna bandaríska Sport Bjarni lætur af störfum hjá KR Fótbolti Vonarstjarna Bayern München framlengir við félagið Fótbolti Barcelona tók titlafernu og fór taplaust í gegnum tímabilið Fótbolti Þýskur sigur í meistaramóti ökumanna Formúla 1 Bellingham skoraði eina markið í sigri Englands gegn Serbíu Fótbolti Ísold stórbætti persónulegt met og varð Norðurlandameistari Sport „Ég veit ekki alveg hvernig það gerðist en ég var glöð að sjá boltann syngja í netinu“ Íslenski boltinn Nablinn slakur í Boston sólinni eftir slæman skell í spilavítinu Körfubolti „Auðvitað ekkert ánægður að fá bara eitt stig en þetta var frábær leikur“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Nablinn slakur í Boston sólinni eftir slæman skell í spilavítinu Þorleifur áfram með Grindavík Mavericks knúðu fram annan leik með krafti Hélt að hásinin hefði slitnað: „Fékk svona tilfinningu eins og einhver hefði sparkað aftan í mig“ Celtics vilja sjá Horford hampa titlinum: „Þetta snýst um meira en bara mig“ Landsliðsmaður snýr heim úr atvinnumennsku og semur við Stjörnuna Alba Berlin tapaði úrslitaeinvíginu án Martins Hulda verður áfram hjá Grindavík Ho You Fat í Hauka Þorvaldur Orri kemur aftur til KR Luka ósáttur með dómgæsluna: „Aldrei komið fyrir mig áður“ Spurðu hvort Friðrik vildi ekki frekar bíða eftir starfi hjá karlaliði Boston með níu fingur á titlinum Körfuboltagoðsögnin Jerry West er látin Segist tilbúinn að deyja á vellinum en fær líklega ekki að spila Badmus fer hvergi WNBA-deildin að slá öll met Neitaði rúmlega átta milljörðum frá Lakers Aftur til Milwaukee eftir brottreksturinn frá Lakers Clark ekki valin í landsliðið: „Þeir vöktu skrímslið“ Kyrie Irving leyfir Luka Doncic ekki að axla ábyrgð á tapinu Mavericks dauðmóðir og Celtics taka tveggja leikja forystu Blása til styrktarleiks í minningu Bjarka Elvar Már áfram í Grikklandi en fer í nýtt félag Friðrik tekur við keflinu í Keflavík Jóhann Árni til Hattar Grindvíkingar sækja Bandaríkjamann norður og Mortensen framlengir Boston tók forystuna í úrslitunum með öruggum sigri Porzingis klár í kvöld og spenntur fyrir úrslitaeinvígi gegn gömlu félögunum Martin ekki meira með á tímabilinu en Alba Berlin komst í úrslit Sjá meira
„Ég veit ekki alveg hvernig það gerðist en ég var glöð að sjá boltann syngja í netinu“ Íslenski boltinn
„Ég veit ekki alveg hvernig það gerðist en ég var glöð að sjá boltann syngja í netinu“ Íslenski boltinn