Búast við hlaupi undan jöklinum á laugardaginn Þórhildur Erla Pálsdóttir skrifar 2. ágúst 2018 17:52
Búist er við að jökulhlaupi í Skaftá aðfaranótt laugardagsins 4. ágúst. GPS-mælingar í Eystri-Skaftárkatli sýna að íshellan þar sé farin að lækka og að rennsli úr lóni við jökulbotninn sé hafið. Líklegt er að rennsli úr katlinum hafi byrjað snemma þriðjudaginn 31. júlí og nemur nú stærðarþrepinu 100 rúmmetrar á sekúndu. Rennslið úr katlinum er vaxandi og vænta má jökulhlaups í Skaftá á næstu dögum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands. Ef atburðarásin verður með sama hætti og hún var í jökulhlaupinu í október 2015 gæti hlaupið brotist undan jökuljaðrinum aðfaranótt laugardagsins 4. ágúst næstkomandi og rennslið nærri jökuljaðrinum náð hámarki snemma á sunnudag. Hlaupið verður um hálfum sólarhring síðar á láglendi við hringveg 1. Ekki er hægt að útiloka að hlaupið verði fyrr á ferðinni og mun náttúruvárvakt Veðurstofunnar fylgjast með framvindu hlaupsins.Má vænta minna hlaups nú Fyrir hlaupið 2015 höfðu liðið fimm ár frá síðasta hlaupi en nú eru þrjú ár frá síðasta hlaupi. Því má vænta minna hlaups nú en eftir jafn langt hlé og var árið 2015. Íssjármælingar Jarðvísindastofnunnar Háskóla Íslands sýna einnig að nokkru minna vatn er í lóninu nú en var í upphafi hlaups 2015. Það er því búist við að rennsli í hlaupinu verði minn en í hlaupinu 2015 en ekki er hægt að fullyrða um það því hlaupið nú gæti brotist hraðar fram.
Tengdar fréttir Fundi sérfræðinga lokið: Fyrsta vatnið undan Skaftárjökli rennur fram eftir rúman sólarhring Mikil gasmengun mun fylgja hlaupinu. 2. ágúst 2018 15:18 Mest lesið Harpa Elín Haraldsdóttir er látin Innlent Lögreglan innsiglaði Flóka Innlent Tveir reyndir lögreglumenn ákærðir fyrir brot í starfi Innlent „Menn eiga ekki að vera að hnýsast í gögn sem þeim koma ekki við“ Innlent Grunaður um að nauðga konu þrisvar sömu nóttina Innlent Stefnt að leiðtogaprófkjöri eftir áramót og kunnugleg nöfn mögulega í pottinum Innlent Segir þaggað niður í starfsfólki og hyggst ekki snúa aftur Innlent Eltihrellir lögreglukvenna situr inni fyrir morð Innlent Þúsundir hafi orðið af milljónum Innlent Grunaðir um hundruð milljóna króna þjófnað en ganga lausir Innlent Fleiri fréttir Sonurinn sefur enn með kylfu undir rúminu Segir þaggað niður í starfsfólki og hyggst ekki snúa aftur Tali ekki fyrir unga Miðflokksmenn Flestir vantreysta ráðherrum Flokks fólksins Eltihrellir lögreglukvenna situr inni fyrir morð Þjófarnir margfölduðu upphæðir við millifærslur Taldi sig sjá bát hvolfa og þyrla og björgunarsveit kölluð út Ákærður fyrir að skjóta að dróna Fiskistofu Grunaðir um hundruð milljóna króna þjófnað en ganga lausir Hundruð kennara nýta gervigreind til að undirbúa kennslu „Upp er runninn Kristrúnar Frostaveturinn mikli“ Starfsmaður Múlaborgar ákærður Gleðiefni að útkomuspá ársins sé á núlli Stefnt að leiðtogaprófkjöri eftir áramót og kunnugleg nöfn mögulega í pottinum Miðflokkurinn með eigið útspil í öryggis- og varnarmálum „Menn eiga ekki að vera að hnýsast í gögn sem þeim koma ekki við“ Reikna með tæplega nítján milljarða afgangi á næsta ári Tekinn í tíunda skipti dópaður og réttindalaus Uppsagnir hjá Icelandair og borgin kynnir fjárhagsáætlun næsta árs „Lífsgæðin mín hafa verið tekin aftur í burtu frá mér“ Bein útsending: Kynnir sína fyrstu fjárhagsáætlun Ölvaður en ekki barnaníðingur Líklegast að Reykjavíkurleiðin taki breytingum eftir umsagnir Harpa Elín Haraldsdóttir er látin Snúin staða Sönnu og sameiginlegt framboð virðist ekki í kortunum Lögreglan innsiglaði Flóka „Við vorum komin með súrefniskúta heim“ Tveir reyndir lögreglumenn ákærðir fyrir brot í starfi Lögreglumenn ákærðir fyrir uppflettingar og hlerun Sækja slasaðan sjómann djúpt austur af landinu Sjá meira
Fundi sérfræðinga lokið: Fyrsta vatnið undan Skaftárjökli rennur fram eftir rúman sólarhring Mikil gasmengun mun fylgja hlaupinu. 2. ágúst 2018 15:18