Sterkar göngur í Norðurá Karl Lúðvíksson skrifar 14. júlí 2018 13:00 Norðurá fer að detta yfir 1.000 laxa múrinn Mynd: Norðurá lodge FB
Veiðin í Norðurá hefur verið mjög góð það sem af er sumri og það stefnir í gott sumar í ánni. Þegar síðustu tölur frá Landssambandi veiðifélaga voru birtar síðasta miðvikudagskvöld var heildarveiðin í Norðurá 834 laxar en holl sem var að ljúka veiðum var með rétt tæpa 150 laxa svo það er deginum ljósara að áin fer yfir 1.000 laxa í dag eða morgun. Þrátt fyrir að vatnsstaðan hafi verið að fara upp og niður eftir mikla rigningardaga er takan mjög góð og veiðimenn sem hafa verið síðustu daga í ánni tala um að Stekkurinn sé blár af laxi. Þrátt fyrir að það hafi verið mikið vatn í ánni oft á tíðum síðustu daga er tími smáflugunnar engu að síður kominn í ánna og veiðimenn hafa meira að segja verið duglegir við að hicha með góðum árangri sem mörgum þykir óhugsandi þegar árnar bólna mikið út en þrátt fyrir mikið vatn víða þá er það bara þannig að smáflugurnar eru oftar en ekki sterkastar.
Mest lesið Það þarf að koma flugunni niður í miklu vatni Veiði Stóra Laxá að ná 400 löxum Veiði Fékk 94 sm hrygnu í fimmta kasti Veiði Opið hús hjá SVFR á föstudagskvöld Veiði 177 laxar komnir úr Affallinu Veiði 20-30 urriðar á dag á ION svæðinu Veiði 64 sm bleikja í Lónsá Veiði Langá á Mýrum komin yfir 2.600 laxa Veiði Refaveiðar í uppáhaldi hjá Maríu Veiði Laxveiðisumarið það fjórða besta Veiði