Sýn tapaði fjórum milljónum Samúel Karl Ólason skrifar 29. ágúst 2018 19:12 Sýn er móðurfélag Vodafone. Vísir/Hanna
Sýn tapaði fjórum milljónum króna á öðrum fjórðungi ársins og er það lækkun um 102 prósent miðað við sama fjórðung í fyrra. Hagnaður á fyrri helmingi ársins var 52 milljónir króna og er það lækkun um 88 prósent á milli ára. Þetta kemur fram í árfsjórðungsuppgjöri Sýnar sem samþykkt var í dag. Þar kemur fram að tekjur jukust um 61 prósent en kostnaður hafi verið hár og fjárfestingar sömuleiðis vegna samþættingar eftir kaup tiltekinna hluta 365 miðla. Reiknað er með aukinni samlegð og sterkari rekstur á seinni helmingi ársins. „Annar fjórðungur var mjög stór samþættingafjórðungur þar sem mikilvægum áföngum var náð eins og til dæmis tilfærsla allra farsímaviðskiptavina 365 yfir á kerfi Sýnar með útskiptingu sim korta án áfalla, sameiningu fjölmargra deilda og þjónustukerfa og flutningi útvarps og dagskrárgerðar úr Skaftahlíð svo fátt eitt sé nefnt. 70% af starfsmönnum keyptra eininga starfa nú á Suðurlandsbraut. Þetta þýðir að mikilvæg samrunaverkefni eru í höfn og því er búist við að kostnaður taki frá þriðja fjórðungi að lækka hratt,“ er haft eftir Stefáni Sigurðssyni, forstjóra, í ársreikningnum. „Við búumst þar af leiðandi við mun sterkari fjórðungum seinni hluta árs þar sem bæði kostnaður lækkar auk þess sem tekjur fjórðunga seinni hluta árs eru sterkar vegna árstíðasveiflu, fjarskiptin sterk á þriðja fjórðungi og fjölmiðlunin á fjórða fjórðungi.“ Í tilkynningu segir að EBITDA horfur fyrir árið séu á bilinu 4.000 til 4.400 milljónir króna af reglulegri starfsemi. Núverandi áætlanir félagsins séu við neðri mörk þess bils. Þá námu fjárfestingahreyfingar samstæðunnar 854 milljónum króna á ársfjórðunginum og er það 59 prósent á milli ára. Vísir er í eigu Sýnar hf.
Mest lesið Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Sjá meira