Nýjar tölur voru birtar um aflabrögð laxveiðiánna í gærkvöldi og Það er greinilega komin haustbragur í nokkrar árnar.
Það hefur hægt aðeins á veiðinni á vesturlandi en það skýrist helst vegna lækkandi vatns og vatnsleysis í sumum ánum. Það virðist þó vera gott magn af laxi í ánum á vesturlandi svo haustið gæti orðið gott þegar það fer að rigna aftur og þá geta sumar árnar gefið virkilega vel og á þetta við t.d. um árnar í dölunum sem geta átt góða spretti í september.
Veiðin í Eystri Rangá hefur verið mjög góð í ágúst og hafa dottið inn nokkrir 100 laxa dagar sem hafa lyft ánni upp í efsta sætið á listanum. Heildarveiðin í henni er komin í 2.651 lax og gæti vel tvöfaldast eða sem næst því áður en yfir líkur enda er nóg eftir af veiðitímanum í henni. Nú eru þrjár ár komnar yfir 2.000 laxa og fimm ár komnar yfir 1.000 laxa. Það gætu einhverjar ár bæst á þann lista en til þess þarf góðann endasprett og rigningar til að hreyfa aðeins við hlutunum.
Fimm aflahæstu árnar eru:
1. Eystri Rangá 2.651 lax
2. Ytri Rangá 2.288 laxar
3. Þverá/Kjarrá 2.202 laxar
4. Miðfjarðará 1.863 laxar
5. Norðurá 1.455 laxar
Listann í heild sinni má finna á www.angling.is
Eystri Rangá aflahæst laxveiðiánna
