Héraðssaksóknari kannar gjaldþrot Rosenberg Stefán Ó. Jónsson skrifar 13. nóvember 2018 15:19 Rosenberg geispaði golunni í fyrra.
Mögulegt bókhaldsbrot í tengslum við gjaldþrot Kaffi Rosenbergs ehf. er komið á borð embættis héraðssaksóknara. Eins og Vísir greindi frá í dag nam gjaldþrot tónleikastaðarins 43 milljónum króna en skiptastjóri þrotabúsins er á vef Ríkisútvarpsins sagður hafa tilkynnt hið hugsanlega brot til embættisins. Rannsókn málsins er þó ekki formlega hafin. Skiptastjórinn, Hróbjartur Jónsson, segir að þrátt fyrir ítrekaðar kröfur hafi ekki borist bókhaldsupplýsingar frá forsvarsmönnum félagsins. Því hafi verið ákveðið að tilkynna málið til héraðssaksóknara.Sjá einnig: Gjaldþrot Rosenberg nam 43 milljónumRosenberg var í eigu þeirra Kára Sturlusonar og Ólafs Arnar Ólafssonar um fimm mánaða skeið, frá febrúar fram í október í fyrra. Í umfjöllunum um sölu staðarins á sínum tíma var hún sett í samhengi við fjármálagjörninga hljómsveitarinnar Sigur Rósar, en Kári hafði annast málefni hljómsveitarinnar í rúmlega áratug. Greint var frá því í september á síðasta ári að 35 milljónir króna hefðu horfið úr miðasölu fyrir tónleikaröð Sigur Rósar í Hörpu. Fyrrnefndur Kári hafði fengið 35 milljóna króna fyrirframgreiðslu af miðasölu tónleikanna hjá forstjóra Hörpu, Svanhildi Konráðsdóttur, sem þó sór af sér alla aðkomu að málinu. Þeim peningum virtist Kári síðan hafa ráðstafað í annað sem var viðburðinum í Hörpu og hljómsveitinni með öllu óviðkomandi.
Tengdar fréttir Gjaldþrot Rosenberg nam 43 milljónum Engar eignir fundust í búi Kaffi Rosenberg, tónleikastaðarins sem rekinn var við Klapparstíg 27. 13. nóvember 2018 13:45 Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira
Gjaldþrot Rosenberg nam 43 milljónum Engar eignir fundust í búi Kaffi Rosenberg, tónleikastaðarins sem rekinn var við Klapparstíg 27. 13. nóvember 2018 13:45