Verkefnið ekki bara samfélagslegt heldur persónulegt: „Nokkrum árum seinna kærði ég“ Stefán Árni Pálsson skrifar 7. september 2018 10:30 Jóhannes Gísli var í viðtali í Íslandi í dag í gær.
Jóhannes Gísli Eggertsson er 24 ára gamall. Hann kallar sig „Jóa lífið“ á Facebook og Snapchat, en heitir ýmsum nöfnum á einkamál.is og Skype, þar sem hann leiðir menn með annarlegar hvatir í gildru – undir því yfirskini að hann sé stúlka fædd árið 2004. Samskipti sín við mennina hefur Jóhannes birt á samfélagsmiðlum og skipta áhorfin tugum þúsunda. Þar má m.a. sjá andlit og símanúmer manna sem falla í gildruna. Hann segir slíkar birtingar réttlætanlegar og vísar m.a. í vefsíðuna Stöndum saman sem starfrækt var í nokkur ár og birti myndir, nöfn og upplýsingar um dæmda barnaníðinga. „Þetta er þess virði í rauninni. Maður veit ekkert hversu mörg börn menn gætu sært og hversu mörg börn myndu jafnvel fyrirfara sér út af einum manni. Maður verður bara að vega og meta hversu mörgum lífum er hægt að bjarga,“ sagði Jóhannes í þættinum Ísland í dag sem sýndur var á Stöð 2 í gærkvöldi. „Þegar ég segist vera fjórtán ára gömul stúlka þá bakka flestir út úr samtalinu en stór stór hluti vill halda áfram að tala. Þetta er alveg oft fimm til tíu prósent af þeim sem hafa samband. Sumir kannski í einhverjum spenningi en sumir kannski tilbúnir að fara alla leið. Hundruð manna hafa haft samband en kannski um 50-100 sem ég hef talað við í heildina, semsagt lengi.“ Jóhannes segir að samtölin séu fljót að verða kynferðisleg eðlis.Jóhannes ræðir stundum við mennina í gegnum Skype.„Það er alltaf af þeirra frumkvæði. Hún er fjórtán ára þessi manneskja sem er búin til og þeir eru fljótir að spyrja hvort hún vilji gera eitthvað eða hvort hún hafi prófað hluti og hvort hún vilji sjá kynfærin á þeim,“ segir Jóhannes sem segist hafa fengið myndir sendar af kynfærum karlmanna. Á vefnum Stöndum saman var hins vegar um að ræða menn sem hafa verið dæmdir. Nú eru þetta bara menn sem falla í þína gildru og hafa ekki verið dæmdir. Er ekki munur á því? „Algjörlega, það er munur á því, en menn taka þessa áhættu ef þeir eru að fara af stað í eitthvað svona,“ segir Jóhannes. Einnig var rætt við Karólínu Finnbjörnsdóttir sem er lögmaður og kennari við lagadeild Háskólans í Reykjavík, en hún hefur skrifað ritgerð og fræðigreinar um tálbeitur í sakamálum. Hún telur aðferðir Jóhannesar vafasamar. „Það er bara spurningin um hvernig við viljum hafa samfélagið okkar. Viljum við sleppa því að hafa hér dómskerfi, ákæruvald og annað og gera þetta allt rafrænt? Færa lögreglunni eða bara einhverjum einkaaðilum góðan síma með góðri myndavél þar sem við erum bara að afhjúpa glæpamenn í beinni? Þannig værum við búin að fá nafnið á þeim og myndina og getum gúglað hvar þeir eiga heima o.s.frv. Þetta er bara spurning um hvað fólk vill,“ segir Karólína.Leið til að hræða „Fólk er mikið að lesa um þessi mál á netinu og á prenti en það færi ekki sjá atburðarrásina, og nær þá frekar að ímynda sér hversu langt aðilinn gæti gengið og þetta verður að svokölluðu forvarnarverkefni,“ segir Jóhannes. Hann segir almenning taka vel í framtak sitt. „Það var margt sem ég hefði geta gert betur en ég held að þetta sé ein af fáum leiðum sem hægt er að nota til að hræða,“ segir Jóhannes en í hans huga er verkefnið ekki bara samfélagslegt heldur einnig persónulegt. „Ég á mína fortíð og var í rugli á tímabili og í neyslu og þessi aðili sagðist vera vinna fyrir barnaverndunarnefnd og gæti kippt í allskonar spotta til að ég yrði ekki sendur eitthvað. Þannig að ég fór til hans og nokkrum árum seinna kærði ég og það var fellt niður. En fyrir stuttu fékk hann tveggja ára dóm fyrir annað brot. Ég hef verið 16 ára á þessum tíma.“
Mest lesið „Þú getur ekki ráðist að mér þegar ég er að borða með ömmu minni“ Tónlist Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Lífið Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Lífið Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Lífið Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Lífið Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Lífið „Ég sef í gallabuxum“ Tíska og hönnun Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Lífið Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Lífið Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Lífið Fleiri fréttir Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Sjá meira