Hvernig upplifir þú, ömmu þína og afa? Hjördís Björg Kristinsdóttir skrifar 21. maí 2018 11:20 Upplifir þú ömmu þína og afa sem auka stærð í Íslensku þjóðfélagi, eða einhverskonar byrði á þjóðfélaginu? Ég tel að þú upplifir þau ekki þannig. Sorglegt er að vita að í þessu þjóðfélagi er stór hópur sem upplifir fólk á þeirra aldri sem samfélagslega byrði. Þú upplifir afa þinn og ömmu sem fólk sem hægt er að treysta. Þú ungi kjósandi minnist þess að amma og afi þinn hafa alltaf verið til staðar fyrir þig. Það voru þau sem komu og veittu þér félagsskap þegar þú þurftir á stuðningi þeirra að halda. Þú manst þegar þú varst lítil/lítill, þá komu þau brosandi til að gæta þín, þegar foreldrar þínir gátu ekki tekið sér frí í vinnunni þegar þú varst veik/veikur. Vinnuumhverfi móður þinnar gaf henni ekki kost á að taka sér frí nema fáa daga, þó hún vildi vera heima hjá þér. Faðir þinn var í starfi sem kostaði langa fjarveru frá heimilinu, svo ekki gat hann komið heim þó þú veiktist. Þau urðu bæði að vinna, svo þið hefðuð fæði, klæði og húsnæði. Þú varst svo heppið barn, að eiga ömmu og afa. Amma eða afi komu og gættu þín, þegar þörf var á. Amma tók þig í fangið, söng fyrir þig barnagælu sem þú kannt enn í dag og munt örugglega kenna þínum börnum. Stundum las amma eða afi fyrir þig uppáhalds söguna þína, þið lituðu saman einhverja mynd eða spiluðu á spil. Stundum sögðu þau afi og amma þér sögur frá því er þau voru börn, og hvað þau voru ung er þau byrjuðu að vinna fyrir sér og hjálpa sínum. Nú eru amma og afi eldri borgarar, og eru að hjálpa börnum sem eiga í erfiðleikum með skólalærdóm sinn. Þau fara tvisvar í viku í sína félagsmiðstöð, þar hittast eldri borgarar sem eiga það sameiginlegt að hjálpa börnum, sem þurfa hjálp við heimalærdóm. Það er ekki inni í myndinni að eldri borgarar fái greitt fyrir þessa aðstoð, frekar en aðra aðstoð sem þeir veita inn í samfélagið. Það er óskiljanlegt, óréttlæti að einhverjum finnist eldri borgarar byrði á þessu þjóðfélagi. Að ömmu þinni og afa þínum sé ekki sýnd sú sanngirni sem þau eiga skilið eftir allt sem þau hafa gert og gera enn fyrir þetta þjóðfélag, sem þið búið öll í. Þú mátt kjósa í sveitastjórnar kosningunum 26. maí 2018 Flokkur fólksins setur fólkið í fyrsta sæti. Settu því X við F = Flokk fólksins, 26.maí 2018.Höfundur skipar 7.sæti á lista Flokk fólksins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Bakslag í streymi Silja Snædal Drífudóttir Skoðun Hver er pælingin? Ásgeir Brynjar Torfason Skoðun Tímaskekkja á 21. öldinni Valerio Gargiulo Skoðun Hvar er eldhúsglugginn? Elsa Ævarsdóttir Skoðun Sögufölsun eytt í kyrrþey Hjörtur Hjartarson Skoðun Satt og logið Bryndís Schram Skoðun Óbærileg léttúð VG Jakob Frímann Magnússon Skoðun Spurðu fólkið Halla Tómasdóttir Skoðun Halldór 27.04.2024 Halldór Vopn, sprengjur og annað eins Árný Björg Blandon Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig forseta vilt þú? Valdís Arnarsdóttir skrifar Skoðun Spurðu fólkið Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Vopn, sprengjur og annað eins Árný Björg Blandon skrifar Skoðun Hvar er eldhúsglugginn? Elsa Ævarsdóttir skrifar Skoðun Bakslag í streymi Silja Snædal Drífudóttir skrifar Skoðun Tímaskekkja á 21. öldinni Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Hver er pælingin? Ásgeir Brynjar Torfason skrifar Skoðun Í átt að velsæld á nokkrum mínútum Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Er fyrirmyndarríkið Ísland í ruslflokki í sorpmálum? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Takk fyrir vettlingana! Hópur foreldra leikskólabarna í Reykjavík skrifar Skoðun Hvað varð um samveruna? Hildur Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Listir og velferð Kristín Valsdóttir skrifar Skoðun Er forsetaframbjóðendum umhugað um dýravernd? Árni Stefán Árnason skrifar Skoðun Þegar þú vilt miklu meira bákn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Óbærileg léttúð VG Jakob Frímann Magnússon skrifar Skoðun Að hafa áhrif á nærumhverfi sitt Guðbrandur Einarsson skrifar Skoðun Framtíð innri markaðarins Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Satt og logið Bryndís Schram skrifar Skoðun Alþjóðlegi leiðsöguhundadagurinn Sigþór U. Hallfreðsson skrifar Skoðun Framsókn leggst ekki í duftið Guðmundur Birkir Þorkelsson skrifar Skoðun Að dreyma um alheim góðvildar Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Að bjarga sex lífum á mínútu í hálfa öld Birna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar þú ert báknið Gabríel Ingimarsson skrifar Skoðun Svik við þjóðina Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Skoðun Innivist er mikilvægasti þátturinn við hönnun íbúða! Ásta Logadóttir skrifar Skoðun Brautryðjandinn Baldur Þóra Björk Smith skrifar Skoðun Katrín og Gunnar? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Ótímabundin leyfi, ótímabundið náttúruníð Elvar Örn Friðriksson skrifar Skoðun Er soja að eyðileggja íslenska karlmennsku? Dögg Guðmundsdóttir,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Er stóraukin lýðræðisþátttaka ekki verðlaunaefni? Einar Freyr Elínarson skrifar Sjá meira
Skoðun Er soja að eyðileggja íslenska karlmennsku? Dögg Guðmundsdóttir,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar