Sameinast undir nafni Sahara Samúel Karl Ólason skrifar 12. janúar 2018 20:45 Davíð Lúther stofnaði framleiðslufyrirtækið Silent fyrir níu árum og er einn af stofnendum Sahara fyrir um 18 mánuðum.
Fyrirtækin Silent og Sahara hafa sameinast undir nafni Sahara. Með þessari sameiningu mun hið nýja sameinaða fyrirtæki Sahara ásamt dótturfélögunum Hey Digital og Sahara Digital í Kaupmannahöfn bjóða uppá heildstæða lausn á sviði stafrænnar markaðssetningar. Fyrirtækið mun, samkvæmt tilkynningu, sérhæfa sig í umsjón samfélagsmiðla, myndbanda- og auglýsingagerð, hönnun, vefsíðugerð, árangursmælingum og stafrænum lausnum. „Fyrirtækin hafa unnið náið saman í hinum ýmsu verkefnum og var því tekin ákvörðun um að sameina þau og styrkja starfsemi þeirra enn frekar, einfalda skipulagið og að bjóða upp á heildstætt lausnarform fyrir fyrirtæki þegar kemur að stafrænni markaðssetningu. Við viljum að fyrirtæki leiti til okkar vegna þess að við stöndum fyrir heildarlausnum á þessu sviði. Markaðurinn hefur breyst töluvert á síðustu tveimur árum þar sem krafa um að færa sýnileika fyrirtækja yfir á netið hefur aukist umtalsvert. Með þessum breytingum erum við því að bregðast við breyttu landslagi og sýna þessum hluta markaðssetningar verðskuldaða athygli. Við erum gríðarlega spennt fyrir framtíðinni,” segir Davíð Lúther Sigurðarson, sem verður framkvæmdastjóri Sahara, í tilkynningunni. Davíð Lúther stofnaði framleiðslufyrirtækið Silent fyrir níu árum og er einn af stofnendum Sahara fyrir um 18 mánuðum. Sahara hefur ráðið átta nýja starfsmenn til að styrkja hið nýja sameinaða félag enn frekar en þau koma öll frá öflugum og virtum fyrirtækjum í atvinnulífinu. Alls starfa nú um 30 hæfileikaríkir og sérfróðir starfsmenn hjá Sahara og eru þeir með ólíkan og fjölbreyttan bakgrunn. Arna Þorsteinsdóttir mun leiða framleiðsludeild, Sigurður Svansson mun leiða samfélagsmiðladeild og Hallur Jónasson mun starfa sem viðskiptastjóri, en þau eru einnig eigendur Sahara. Inga Rós Antoníusdóttir verður framkvæmdastjóri danska félagsins og er einn af eigendum þess félags.Nýir starfsmenn Sahara Hjalti Harðarson mun starfa sem markaðs sérfræðingur hjá Sahara en hann er viðskiptafræðingur að mennt. Hjalti hefur langa reynslu af sölu og markaðsstörfum og hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra Kjarnans undanfarin ár. Berglind Arnardóttir mun starfa sem markaðs sérfræðingur í samfélagsmiðladeild Sahara. Berglind er menntaður viðskiptafræðingur. Hún hefur starfað hjá Íslensku auglýsingastofunni undanfarin ár sem markaðsráðgjafi. Sigurjón Bjarni Sigurjónsson starfar sem verkefnastjóri framleiðsludeildar Sahara. Hann er sviðshöfundur að mennt. Sigurjón hefur starfað hjá Borgarleikhúsinu undanfarin ár og hefur mikla reynslu af leikstjórn, skrifum og uppsetningum á leikritum. Berglind Ósk Svavarsdóttir starfar sem verkefnastjóri framleiðsludeildar Sahara, hún er menntaður ljósmyndari. Berglind hefur dvalið í Kaupmannahöfn síðastliðin þrjú ár og hefur viðamikla reynslu af umsjón verkefna og efnissköpun. Andrea Hringsdóttir starfar sem margmiðlunarsérfræðingur í framleiðsludeild Sahara. Andrea er heimspekingur að mennt og með diplómu í grafískri miðlun og margmiðlunarfræðum. Andrea kemur frá auglýsingastofunni VERT. Gunnar Magnússon starfar sem margmiðlunarsérfræðingur í framleiðsludeild Sahara, hann er með diplómu í margmiðlunarfræðum. Gunnar kemur frá prentsmiðjunni Héraðsprent þar sem hann starfaði við hönnun og umbrot. Tómas Valgeirsson starfar sem samfélagsmiðlafulltrúi og textasmiður Sahara. Tómas er útskrifaður af listnámsbraut og hefur undanfarin ár starfað sem blaðamaður hjá Birtingi, RÚV og Fréttablaðinu. Arnar Gunnarsson starfar sem samfélagsmiðlafulltrúi Sahara en hann er með BS gráðu í sálfræði og markaðsfræði. Arnar hefur m.a. starfað sem fyrirtækjaráðgjafi hjá PEI og sem sölu- og þjónustufulltrúi hjá fjarskiptafyrirtækinu NOVA. Engilbert Aron Kristjánsson starfar sem samfélagsmiðlafulltrúi Sahara. Hann er markaðsfræðingur að mennt. Engilbert Aron starfar einnig sem aðstoðarkennari við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.
Mest lesið Pipar/TBWA með flesta Lúðra Viðskipti innlent Forstjóri Nova: Ekkert betra en brakandi hrein rúmföt eftir gufuna Atvinnulíf Orkuveitan jafnar stöðu foreldra á vinnumarkaði Samstarf Skipti ekki máli hvaðan olían er Viðskipti innlent Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Viðskipti innlent Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Viðskipti innlent Kalla inn leikföng mögulega menguð af asbesti Neytendur Kulnun, kostnaður og gervigreind: Hvað gera stjórnendur nú? Samstarf Android-notendur í hættu að vera ofrukkaðir í Strætó Neytendur Hildur fer frá Hörpu til KPMG Viðskipti innlent Fleiri fréttir Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Jón Örn genginn í eigendahópinn Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Gjaldþrot Play nemur 21 milljarði króna Boðar aðgerðir á allra næstu dögum gegn verðbólgu Dæmdir fyrir að taka við fé fyrir Teslur sem þeir afhentu aldrei Affineva bar sigur úr býtum Munaðarlausi apinn í Japan farinn að hafa áhrif á Íslandi Gugga fer í fyrirtækjarekstur „Það er einhvers konar pissa í skóinn sinn-hagfræði“ Sýn skilaði hagnaði á fjórða ársfjórðungi Kvikutoppar fóru fýluferð í Landsrétt og borga tugi milljóna Sjá meira